Innlent

Þáttur foreldra í offitu barna er afgerandi

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Pétur Benedikt Júlíusson, yfirlæknir á háskólasjúkrahúsinu í Bergen í Noregi segir mikilvægt er að finna út hvaðan aukakaloríurnar í fæði barnanna koma.
Pétur Benedikt Júlíusson, yfirlæknir á háskólasjúkrahúsinu í Bergen í Noregi segir mikilvægt er að finna út hvaðan aukakaloríurnar í fæði barnanna koma. NORDICPHOTOS/AFP
Þáttur foreldra í þyngd barna er afgerandi. Þetta segir Pétur Benedikt Júlíusson, yfirlæknir á deild Haukeland-háskólasjúkrahússins í Bergen í Noregi fyrir of feit börn.

„Það þarf að gefa þætti foreldra meiri gaum. Foreldrarnir bera ábyrgð á því hvað börnin borða og hvað þau gera í frístundum, einkum þegar þau eru lítil,“ segir hann.

Pétur bendir á að vægi erfða og umhverfis sé líklega jafnt. Þá segi það sig sjálft að þáttur foreldra sé mikill.

Niðurstöður vaxtarmælinga Péturs á 8.300 börnum í Bergen frá 2003 til 2006 og viðhorfum foreldra þeirra leiddu í ljós að foreldrar gera sér ekki alltaf grein fyrir ofþyngd barna sinna. „Í 90 prósentum tilfella, þegar um var að ræða ofþyngd leikskólabarna, fannst foreldrunum þyngd barnsins eðlileg. Í 61 prósenti tilfella ofþyngdar hjá 6 til 12 ára börnum gerðu foreldrar sér ekki grein fyrir henni.

„Skýringin á því kann að vera sú að börn þeirra skera sig ekki úr þar sem svo mörg börn eru of þung,“ segir Pétur.

Hann tekur það fram að einnig geti verið að foreldrar líti á það sem hraustleikamerki að barnið sé í þyngri kantinum. Þetta undirstriki mikilvægi þess að vera með rútínumælingar.

Vinnuhópur á vegum norska heilbrigðisráðuneytisins, sem Pétur var í, lagði til fleiri skylduþyngdarmælingar en höfðu verið. „Áður var aðeins ein skylduþyngdarmæling þegar barnið var sex vikna. Nú eru börnin vigtuð sjö sinnum á fyrsta árinu, tvisvar sinnum á öðru ári, þegar þau eru fjögurra ára og í 1., 3. og áttunda bekk. Þar með er hægt að grípa fyrr inn í. Það er erfiðara að losna við offitu þegar maður er orðinn fullorðinn.“

Pétur segir alveg hættulaust að taka þessi mál upp við börn. „Við höfum meðhöndlað of feit börn frá 2004 og höfum ekki upplifað neitt tilvik af lystarstoli. Heilsugæsluhjúkrunarfræðingar hér hafa verið hræddir við að taka þetta upp en engar rannsóknar hafa sýnt fram á að slík nálgun leiði af sér lystarstol.“

Foreldrar taka þátt í meðferð of feitra barna á sjúkrahúsinu hjá Pétri. „Það er mikilvægt að finna út hvaðan aukakaloríurnar í fæði barnanna koma auk þess sem koma þarf á góðum venjum tengdum matmálstímum. Við mælum ekki með því að fjölskyldan borði fyrir framan sjónvarpið og tölvuna. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að hægt er að hafa það „huggulegt“ á annan hátt en að borða.

Börn sem hafa sjónvarp inni í herberginu sínu eða eyða of miklum tíma fyrir framan skjá eiga einnig á hættu að verða of þung. Slíkt leiðir auðveldlega til aðgerðaleysis.

Pétur segir að til séu rannsóknir sem sýni að allt að 70 prósent barna séu of þung ef báðir foreldrarnir eru of þungir. Sé annað foreldrið of þungt eru 40 prósent barnanna of þung. „Lífsstílsmeðferð fjallar eiginlega um að koma á þeim lífsstíl sem passar okkar náttúru.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×