Króatískar bullur eru blankar Jakob Bjarnar skrifar 14. nóvember 2013 13:33 Ivica Gregoric og króatískir stuðningsmenn. Ivica telur engar líkur á að vandræðamenn komi til Íslands.
Ivica Gregoric húsasmíðameistari er af króatísku bergi brotinn. Hann er spenntur fyrir leiknum og telur nánast engar líkur á því að hingað til lands slæðist vandalar og bullur sem stundum fylgja króatíska liðinu. Ivica kom til Íslands árið 1997, kona hans er íslensk og krakkarnir tveir fæddust hér. Hann segist halda með Króatíu en hvernig sem fer stendur hann uppi sem sigurvegari. Ivica segir þá sem hér eru búsettir og koma frá Króatíu ekki nándar eins stóran hóp og til dæmis þeir sem koma frá Póllandi, en þeir halda hópinn og standa fyrir skipulögðum viðburðum. Sjálfur tilheyrir hann þéttum hópi fjölskyldumeðlima og vina sem reynir að hittast einu sinni í mánuði og þeir ætla að mæta á leikinn. Og eru spenntir.Og, þið haldið með Króatíu? „Já, auðvitað. En, ég kom til Íslands 1997. Konan mín er íslensk, krakkarnir 10 og 12 ára, eru fæddir á Íslandi. Ég verð ekki í vondu skapi ef Krótatía tapar. Því þá myndi Ísland fara áfram á HM sem er miklu meira afrek fyrir Ísland. Króatía á örugglega eftir að fara aftur á HM og í Evrópukeppni þó þeir tapi þessu einvígi,“ segir Ivica sem viðurkennir fúslega að sveiflast nokkuð í afstöðu sinni. „En, þetta er rosalega spennandi og skemmtilegur tími. Margir hringja í mig og spyrja með hverjum ætlar þú að standa. Mikil pressa. Aldrei upplifað eins mikinn undirbúning fyrir leikinn og nú er hjá íslenska liðinu. Gaman fyrir okkur.“ Ivica og félagar fengu miða í gegnum Króatíska knattspyrnusambandið. Króatíska liðið var nýverið sektað vegna framgöngu stuðningsmanna sem reyndust hinar mestu bullur. Ivica telur ekki mikla ástæðu til að hafa áhyggjur af því.Mikil stemmning er á heimili Ivicia vegna leiksins.„Já, sko. Það var hringt í mig frá króatískum fjölmiðlum og þeir spurðu einnig út í þetta. Það sem ég veit, er að þetta eru harðir stuðningsmenn frá liðum eins og Dinamo Zagreb og Hajduk Split. Þetta eru menn sem ferðast um alla Evrópu og yfirleitt á puttanum og reyna að útvega sér sem ódýrasta flugmiða og ég hef enga trú á að slíkir menn séu að koma á leikinn. Í fyrsta lagi er þetta alltof dýrt,“ segir Ivica og bendir á að íslenska og króatíska knattspyrnusambandið hafi náið samstarf um þetta við lögregluna. „Þessir menn fengu ekki einu sinni miða í gegnum króatíska knattspyrnusambandið. Þannig að ég hef engar áhyggjur af þessu. En ég skil vel að Íslendingar hafi áhyggjur af þessu því þetta er mikilvægur leikur. Ivica Gregoric segir að hann hafi orðið fyrir nokkrum vonbrigðum þegar hann fékk að vita hvernig staðið yrði að málum: „Mér skilst að við, stuðningsmenn króatíska liðsins, verðum settir í einskonar búr. Og mér finnst það nú einum of. En maður skilur að þeir sem sjá um öryggið vilji ekki taka neina áhættu. En, ég er 99 prósent viss um að það verði engin vandræði. Það fylgir náttúrlega einhver drykkja og stemmning eins og alltaf er. En þetta fólk sem er að koma til Íslands, þetta eru meira og minna fjölskyldumenn. Og áhugamenn um íþróttir. Ekki menn sem eru að koma hingað til að verða til vandræða.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira