Guðjón hafði samband við okkur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. febrúar 2013 11:29 Guðjón Þórðarson. Mynd/Valli
Jónas Þórhallsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur, segir að það hafi verið Guðjón Þórðarson sem átti frumkvæði að því að koma til starfa hjá félaginu. Þetta er á skjön við það sem Guðjón sagði í viðtölum í vikunni. Mál hans hafa verið í brennidepli í vikunni eftir að stjórn knattspyrnudeildar Grindavíkur birti ársskýrslu sína á heimasíðu félagsins. Þar segir að það hafi verið rétt afstaða hjá Þorsteini Gunnarssyni, þáverandi formanni knattspyrnudeildar, að vilja ekki ráða Guðjón. Honum hafi ekki fylgt sama ástríða og vonast hefði verið til, segir í skýrslunni. Guðjón vísaði þessu á bug í viðtali í bæði sjónvarpsfréttum Stöðvar 2 og Rúv í vikunni. „Ég á til dæmis pósta fra á Þorsteini þar sem hann býður mér starfið, þar sem ég á þeim tímapunkti afþakkaði starfið. Hann sendir mér annan póst þar sem hann ítrekar að hann óski eftir að fá mig til starfa og talar um hvað þurfi til að fá mig til að koma til Grindavíkur," sagði Guðjón. „Ég hafði samband við hann árið 1999 og 2005 og vildi fá hann til starfa þá," sagði Jónas í Boltanum á X-inu í morgun. „En árið 2011 hringdi hann í mig og sóttist eftir þessu starfi." Guðjón sagði einnig að honum hafi ekki verið gert fyllilega grein fyrir slæmri fjárhagsstöðu félagsins þegar hann kom til starfa. „Honum var fulljóst þegar hann kom að við vorum að takast á við stórt gat í okkar fjárhagi." Guðjóni var sagt upp störfum hjá Grindavík eftir að liðið féll úr Pepsi-deild karla. Guðjón heldur því fram að uppsögnin hafi verið ólögmæt og því er málið hjá lögfræðingum nú. „Ég vil að öðru leyti ekki ræða þessi mál opinberlega. En ef hann vill fara alla leið í réttarsalnum erum við ekki feimnir við að ljúka þessu. Það er allt á hreinu á okkar borði." „Við erum að horfa fram á veginn. Þetta er hugsjónarstarf og Guðjóni Þórðarsyni er það ljóst eins og öllum öðrum. Þeir eiga að þakka fyrir að hafa fengið að vera á þessu sviði og með hugsjónarfólk í kringum sig," sagði Jónas. Upptaka með viðtalinu við Jónas kemur inn á Vísi síðar í dag.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir 20 milljóna króna ölmusuferð "Við fórum í björgunarleiðangur – svokallaða ölmusuferð til Reykjavíkur,“ segir Jónas Þórhallsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur. Taka þurfti til í fjárhagsmálum deildarinnar og stendur sú vinna yfir. 21. febrúar 2013 07:30 "Rétt hjá Þorsteini að vilja ekki ráða Guðjón“ Jónas Þórhallsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur, segir að afstaða Þorsteins Gunnarsson í ráðningu Guðjóns Þórðarsonar til félagsins hafi reynst rétt. 20. febrúar 2013 10:56 Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira
20 milljóna króna ölmusuferð "Við fórum í björgunarleiðangur – svokallaða ölmusuferð til Reykjavíkur,“ segir Jónas Þórhallsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur. Taka þurfti til í fjárhagsmálum deildarinnar og stendur sú vinna yfir. 21. febrúar 2013 07:30
"Rétt hjá Þorsteini að vilja ekki ráða Guðjón“ Jónas Þórhallsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur, segir að afstaða Þorsteins Gunnarsson í ráðningu Guðjóns Þórðarsonar til félagsins hafi reynst rétt. 20. febrúar 2013 10:56