Ég er með breitt bak Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. maí 2013 08:00 Róbert Örn verður í eldlínunni í Kópavogi í kvöld. Fréttablaðið/Stefán.
Róbert Örn Óskarsson hefur farið á kostum á milli stanganna hjá Íslandsmeisturum FH í byrjun tímabils. Hafnfirðingar sækja Breiðablik heim í kvöld. „Leikurinn leggst bara þrusuvel í mig. Við höfum byrjað mótið ágætlega og eigum von á hörkuleik,“ segir Róbert Örn Óskarsson, markvörður FH. FH-ingar eru taplausir eftir þrjá leiki og markvörðurinn 25 ára hefur aðeins tvisvar sinnum þurft að hirða knöttinn úr neti sínu. „Þetta hefur gengið ágætlega. Þessir þrír leikir hjálpa mér þó lítið á móti Breiðabliki nema hvað sjálfstraustið varðar,“ segir Róbert Örn. Hann segir sjálfstraustið gott en er meðvitaður um að það geti breyst hratt sé hausinn ekki rétt skrúfaður á. Það vakti töluverða athygli síðastliðið haust þegar Gunnleifur Gunnleifsson, þáverandi markvörður og fyrirliði FH-inga, söðlaði um og gekk í raðir Breiðabliks. FH vildi ekki skuldbinda sig til lengri tíma við Gunnleif en setti þess í stað traust sitt á Róbert Örn sem aðeins hafði reynslu úr neðri deildum Íslands. „Ég gerði nokkur mistök á undirbúningstímabilinu sem ég vissi að ég myndi gera. En ég vil miklu frekar gera mistök yfir veturinn heldur en á miðju tímabili.“ Töluvert var slúðrað í vor um að FH-ingar væru á höttunum eftir reynslumeiri markverði. Róbert segir umræðuna ekkert hafa truflað sig. „Hún hefði kannski gert það hefði ég ekki notið svo mikils trausts hjá stjórn, þjálfurum og leikmönnum FH,“ segir Róbert Örn. „Menn mega tala eins og þeir vilja því ég er með breitt bak. En á meðan FH-liðið treystir mér þá er ég sáttur.“ Leikur Breiðabliks og FH hefst klukkan 20 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Leikir kvöldsins 19.15 ÍA - Fram 19.15 Stjarnan - Valur 20.00 Breiðablik - FH
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Liverpool - Arsenal | Englandsmeistararnir mæta í Bítlaborgina Sport Fleiri fréttir Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjá meira