Telja víst að fé sé dautt Jakob Bjarnar skrifar 18. september 2013 13:18 Vilhjálmur Snædal segir vitað að féð sé mikið í kílunum sem eru uppbólgnir af krapa og vatni og um það fé þurfi ekki að spyrja.
Vilhjálmur Snædal, bóndi á Skjöldólfsstöðum á Jökuldal segir líta afskaplega illa út með fé sem varð fyrir óveðrinu sem gengið hefur yfir landið undanfarna daga. Kominn er gaddur en bændur á Dal eru nú að halda á heiðina til að athuga með afdrif fjárins. Bændur á Jökuldal óttast nú um fé sitt eftir mikið óveður sem þar hefur gengið yfir. Vilhjálmur Snædal, á Skjöldólfsstöðum, segir erfitt að segja til um stöðu mála sem stendur en bændur stefna nú á heiðina á sleðum til að athuga með féð, aðstæður eru mjög erfiðar. „Staða mála núna (um hádegi) er sú að komið er bjart veður. Menn eru í óða önn, hafa verið að brasa við fé í veðri sem hefur verið verulega vont. Ógeðslegt – eins og veður á ekki að vera þegar verið er að eiga við fé. En nú er orðið bjart. Einn er farinn á sleða í heiðina. Honum lýst illa á. Sér ekki neitt enn -- lifandi. Og það er ... já, það er bara gaddur,“ segir Vilhjálmur bóndi.Vilhjálmur telur engar líkur á öðru en fé sé dautt í stórum stíl. (Myndin er frá í fyrra þegar menn lentu í fjárskaða.)Menn eru nú að safnast saman á sleðum sínum og ætla að fara hratt yfir til að sjá hvernig þetta er. „Hún er svo víðlend heiðin að menn leita nú ekki mikið í hverjum skafli fyrir sig. Við vitum að þetta er mikið í kílunum sem eru uppbólgnir af krapa og vatni. Og það þarf ekkert að spyrja um það fé. Það er dautt!“ Vilhjálmi lýst afar illa á og óttast að það verði óskaplega fátt sem komi niður í dal lifandi. „Þetta eru mörg, mörg hundruð. Þetta skiptir hundruðum. Það var ekki búið að smala þetta. Byrjað var að smala Efri-Dal sem við köllum, innan við Gilsá, í fínasta veðri. Svo er haldið áfram út eftir, í átt til sjávar. En, svo vakna menn morguninn eftir, til að halda áfram en þá í kolvitlausu veðri. Stórhríð, hvassviðrið var svo mikið og þá sópar svo mikið niður í. Það hverfur allt.“
Mest lesið Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Lúsmýi fækkar en moskítóflugan ekki dauð úr öllum æðum Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Innlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Innlent Fleiri fréttir Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýi fækkar en moskítóflugan ekki dauð úr öllum æðum Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Sjá meira