Fólk hefur orðið veikt á geði eftir sveppaát Jakob Bjarnar skrifar 18. september 2013 14:00 Þeir sem ætla að leggja sér til munns sveppinn Trjónupeðlu ættu að hugsa sig vel um.
Nú er runninn upp sá árstími þegar þeir sem sækjast eftir vímu af sveppaáti fara á stjá. Vegna eiturefna í tilteknum sveppum getur neysla þeirra reynst stórhættuleg að sögn Guðríðar Gyðu Eyjólfsdóttur sveppafræðings. Lögreglan handtók í nótt mann í Kópavogi sem var í annarlegu ástandi, vægast sagt. Hann öskraði, gólaði og veinaði af öllum lífs og sálarkröftum. Lögreglan telur að þetta sé vegna sveppaáts mannsins. „Það er mjög líklegt að þetta sé Trjónupeðla, (Psilocybe semilanceata), sveppur sem vex á grasflötum og graslendi seint á haustin,“ segir Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sveppafræðingur en hún starfar hjá Náttúrufræðistofnun Íslands á Akureyri. Þar sem hún stundar svepparannsóknir. Hún segir virkni þessa svepps verulega. „Það eru í honum efni sem virka svipað og taugaboðefni og virka þar með á heilann í fólki. Sem sér þá sýnir; liti og slíkt.“ Þetta eru sem sagt efni sem valda ofskynjunum svipað og LSD. Guðríður Gyða segir að nú sé sá tími að menn leiti sveppa til að komast í vímu. Þessi tiltekni sveppur ber aldin seint á haustin, oft þegar búið er að frjósa. Guðríður Gyða segir neysla sveppanna geta reynst hættuleg. „Já, þetta getur víkkað upp einhverjar sprungur í sálarlífinu. Það er dæmi um fólk sem hefur orðið veikt á geði eftir svona reynslu. Svo getur fólk fengið það sem kallað er „slæm ferðalög“ eða „bad trips“. Fólk þarf að vera í góðu umhverfi og öruggt meðan á þessu stendur.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið í útkalli á Hringbraut Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Sjá meira