Viðskipti innlent

Framkvæmdastjóri OECD væntanlegur til landsins

Angel Gurría hefur stýrt OECD frá árinu 2006.
Angel Gurría hefur stýrt OECD frá árinu 2006.
Angel Gurría, framkvæmdastjóri Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), kemur hingað til lands í opinbera heimsókn dagana 26.-28. september næstkomandi.

Gurría kemur í boði Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Hann verður aðalfyrirlesari á alþjóðlegu ráðstefnunni „The Future Ain´t What it Used to Be“ – 20 years of Competition Law and the Challenges Ahead“, en ráðstefnan fer fram í Reykjavík 27. september. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Samkeppniseftirlitið og áfrýjunarnefnd samkeppnismála standa að ráðstefnunni. Þar verður fjallað um samkeppnismál í litlu hagkerfi og þær áskoranir sem við blasa. 

Frá þessu er greint á vef fjármálaráðuneytisins. 

Þar segir einnig að Gurría muni funda með forsætisráðherra og forseta Íslands á meðan á heimsókn hans stendur. Hann mun einnig eiga fund með íslenskum ráðherrum um umbætur á skipulagi og stjórnun ríkiskerfisins til að draga úr kerfislægum ágöllum og byggja upp einfaldari, markvissari og árangursríkari opinbera þjónustu.



Angel Gurría hefur stýrt OECD frá árinu 2006. Hann gegndi áður embættum fjármálaráðherra og utanríkisráðherra í Mexíkó. OECD hefur það markmið að efla hagvöxt í heiminum og bæta lífsgæði og félagslega velferð, með því að hafa áhrif á stefnumörkun stjórnvalda. Stofnunin er leiðandi í tölfræðiúttektum og samanburðarrannsóknum í opinberri stjórnsýslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×