Viðskipti innlent

Nýtt skip í flota Samskipa

Haraldur Guðmundsson skrifar
Í tilkynningu frá Samskipum segir að skipið hafi verið byggt í Jinling skipasmíðastöðinni í Kína árið 2003.
Í tilkynningu frá Samskipum segir að skipið hafi verið byggt í Jinling skipasmíðastöðinni í Kína árið 2003.
Samskip hafa bætt nýju skipi í flota sinn. Gengið var frá kaupum á skipinu, sem hefur fengið nafnið Samskip Akrafell, í byrjun mánaðarins.

Í tilkynningu frá Samskipum segir að skipið hafi verið byggt í Jinling skipasmíðastöðinni í Kína árið 2003. Skipið er 99,9 metra langt, 18,6 metra breitt og ber um 500 gámaeiningar. Tveir gámakranar eru um borð og eru báðir með 40 tonna lyftigetu. Skipið er systurskip Pioneer Bay, sem hefur meðal annars verið notað við strandsiglingar á Íslandi.

„Samskip Akrafell er nú í þurrkví í Rotterdam, þar sem reglubundið viðhald fer fram. Vinnu við skipið lýkur í næstu viku. Fyrirhugað er að þessi nýjasta viðbót Samskipaflotans verði í Evrópusiglingum og þjóni ýmist Noregi eða Íslandi,“ segir í tilkynningu Samskipa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×