Stefnulaus ríkisstjórn Höskuldur Kári Schram skrifar 21. september 2013 13:33
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir að ríkisstjórnin bjóði fyrirtækjum og íslenskum almenningi upp á dapurlega framtíðarsýn. Krónu í höftum og versnandi lífskjör. Hann segist ekki hafa íhugað að segja af sér eftir kosningaósigurinn í vor. Samfylkingin tapaði ellefu þingmönnum í síðustu kosningum og fór úr því að vera stærsti flokkur landsins í að vera sá þriðji stærsti. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir að flokkurinn hafi ætlað sér að gera of mikið á síðasta kjörtímabili og sett markið of hátt. „Á vissan hátt gleymdum við okkur í erfiðum verkefnum og vanræktum að eiga samtal við þjóðina.“ Árni segist ekki hafa íhugað að segja af sér eftir kosningar. „Ég var nýkjörinn sem formaður og hafði haft tvo mánuði til að leiða flokkinn. Það var alltof skammur tími. Ég held að það sé alveg ljóst að það er óheppilegt að skipta um mann í brúnni svona stuttu fyrir kosningar.“ Árni segir að draumurinn um stóran jafnaðarmannaflokk lifi góðu lífi þrátt fyrir þennan kosningaósigur. „Menn gleymdu honum í aðdraganda síðustu kosninga og töldu það skipta engu máli að hafa stóran jafnaðarmannaflokk. Menn gleymdu sér í því að taka þátt í gamaldags fegurðarsamkeppni á vinstri væng íslenskra stjórnmála, þ.e. þessi fegurðarsamkeppni lítilla vinstriflokka sem gerði íslenska vinstrihreyfingu og umbótaöfl í landinu áhrifalaus um áratugi.“Samstarf á vinstri vængnum Eftir kosningar fór af stað umræða um mögulega sameiningu vinstri flokka, þá sérstaklega Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. „Þær hugmyndir hafa ekki komið til tals á milli flokkanna. Svoleiðis samstarf þarf þá að vera um málefni. Vinstri græn voru stofnuð vegna þess að menn vildu ekki taka þátt í jafnaðarmannaflokki. Samfylkingin vill ekki hætta því að vera jafnaðarmannaflokkur.“ Árni segir enn fremur að ekki hafi komið til tals að mynda kosningabandalag í Reykjavík með öðrum vinstriflokkum fyrir næstu borgarstjórnarkosningar.Árni Páll er á sínu fyrsta kjörtímabili sem formaður Samfylkingarinnar.Mynd/VilhelmAðildarferlið ekki dautt Eitt af fyrstu verkum ríkisstjórnar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks var að gera hlé á aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið. Nýlega ákvað svo Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra að leysa samninganefnd Íslands frá störfum. Árni segir að þrátt fyrir þetta sé aðildarferlið ekki dautt. „Auðvitað getur ríkisstjórnin sett málið í hlé og hún hefur ákveðið svigrúm til þess en ekki endalaust. Yfirlýsingar forystumanna ríkisstjórnarflokkanna fyrir síðustu kosningar voru þannig að þessir flokkar hafa ekkert umboð til þess að slíta viðræðum án þess að þjóðin fái fyrst að segja álit sitt á því. Ríkisstjórnin er mjög vaklandi í afstöðu sinni til aðildar. Það liggur fyrir að hún mun þurfa að leggja fyrir þingið stefnubreytingu ef hún ætlar að hætta aðildarferlinu.“Engin framtíðarsýnSvana Helen Björnsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, ritaði grein í Fréttablaðið á fimmtudag þar sem hún segir að íslensk fyrirtæki séu byrjuð að flýja land út af gjaldeyrishöftum. Árni segir nauðsynlegt fyrir stjórnvöld að marka sóknarstefnu til framtíðar fyrir íslensk fyrirtæki. „Við munum ekki geta rekið áfram norrænt velferðarkerfi ef við höfum ekki norrænt atvinnulíf, norrænt viðskiptafrelsi og norrænt atvinnuskapandi samfélag,“ segir Árni. „Vandi þessarar ríkisstjórnar er að hún getur ekki horfst í augu við það að búa til einhverja sóknarstefnu fyrir þetta land. Hún er læst inni í eigin hindurvitnum og eigin ótta við umheiminn. Hún keppist við að loka dyrum þegar hún ætti að vera að opna þær. Stefnuleysi hennar er að ryðja okkar samkeppnishæfustu fyrirtækjum úr landi.“ Árni segir ráðaleysi einkenna störf ríkisstjórnarinnar. „Það vita það allir að íslensk króna getur ekki orðið grundvöllur sambærilegra lífskjara hér og í öðrum löndum um næstu áratugi. Það vita allir nema ríkisstjórnin og hún treystir sér ekki til að horfast í augu við þá staðreynd. Þess vegna setur hún allt í bið. Framsóknarflokkurinn er í þessari ríkisstjórn til að ná fram skuldalækkun. Sjálfstæðisflokkurinn er að reyna ná fram skattalækkunum. Þeir lofuðu hlutum sem eru algjörlega ósamrýmanlegir. Annar talar í austur og hinn í vestur í þessu stjórnarsamstarfi. Við verðum afskaplega lítið vör við það hvert skalt stefna. Ég skynja að það er hart í ári hjá fólki. Fólk hefur minna á milli handanna en oftast áður frá hruni. Lífskjaraskerðingin er komin til að vera og fólk sér enga augljósa leið fram á við. Fyrirheitin sem hafa verið gefin um skuldaniðurfellingar valda því að allt er í bið. Lánshæfismat landsins lækkar. Seðlabankinn segist ekki geta lækkað vexti. Aðilar vinnumarkaðarins segjast ekki geta gert langtímasamninga.“ Árni segir að ríkisstjórnin hafi í raun slegið skjaldborg utan um ákveðna forréttindahópa. „Hagsmunir ákveðinna forréttindahópa að baki Sjálfstæðis- og Framsóknarflokknum eiga ekki að ganga framar hagsmunum þorra þjóðarinnar. Það er ekki hægt að sætta sig við að litlar klíkur sem eiga hagsmuni í því að hafa landið lokað og fá enga samkeppni ráði ferðinni.“Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Bjarni Benediktsson og Árni Páll Árnason.Mynd/ValgarðurÖllu snúið á haus Árni segir að Samfylkingin sé tilbúin að styðja aðgerðir ríkisstjórnarinnar þegar kemur að skuldaniðurfærslu. Starfshópar á vegum ríkisstjórnarinnar sem vinna að tillögum í málinu eiga að skila af sér í lok nóvember. „Við förum ekki í málþóf til að stöðva framkvæmanlegar tillögur sem ríkisstjórnin kemur með. Við sögðum alveg skýrt fyrir síðustu kosningar að það væru hópar sem enn væru óbættir hjá garði. Það athyglisverða er að tillögur ríkisstjórnarinnar, eða það sem forsætisráðherra og framsóknarmenn eru að gefa ádrátt um, virðast ekki vera meira en það sem við vorum að segja fyrir kosningar. Þegar Frosti Sigurjónsson, þingmaður Framsóknar, kemur núna og segir að það séu einhverjir hópar sem ekki hafi fengið eitthvað og þeir eigi að fá það núna en þeir sem eru í raunverulegum greiðsluvanda eigi ekkert að fá þá er auðvitað verið að snúa á haus öllu því sem Framsóknarflokkurinn sagði fyrir kosningar.“ Árni segir mikilvægt að gæta jafnræðis þegar kemur að skuldaniðurfærslu. „Það hefur verið mjög snúið að finna leiðir til að gera þetta svo að sanngirni og jafnræðis sé gætt. Við viljum ekki ósanngjarnar lausnir. Það eru auðvitað margar spurningar sem vakna þegar ríkisstjórnin gefur fólki ádrátt með þessum hætti. Hvað á að gera við einstakling sem er með verðtryggð lífeyrisréttindi og verðtryggðar skuldir? Á að laga forsendubrestinn á skuldahliðinni en leyfa honum að njóta forsendubrestsins á eignahliðinni? Hvað á að gera við leigjendur sem urður fyrir forsendubresti þegar verðtryggð leiga hækkaði? Svona má lengi telja og það hefur aldrei verið útfært af framsóknarmönnum. Við munum ekki styðja og við munum ekki geta sætt okkur við aðgerðir sem fela í sér að almennt launafólk beri herkostnaðinn af þessari ævintýraferð.“
Mest lesið Stúlka í sjóinn við Reynisfjöru Innlent Stóra tjaldið fellt og hætt við brennuna vegna óveðurs Innlent Stúlka flutt á sjúkrahús eftir fall í sjóinn við Reynisfjöru Innlent Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum Erlent „Það var töluvert verra veður en spáin sagði“ Innlent Stúlkan sem fór í sjóinn er látin Innlent „Varla gangfær“ og „skulfu eins og hríslur“ Innlent „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Erlent Herjólfur siglir ekki meira í dag Innlent Aldrei upplifað annað eins: „Það eru öll stígvél á þessari eyju uppseld“ Innlent Fleiri fréttir Skinkur og Sykurpabbar skemmta sér á Egilsstöðum Blússandi stemning á harmonikkuhátíð á Borg Stúlkan sem fór í sjóinn er látin Aldrei upplifað annað eins: „Það eru öll stígvél á þessari eyju uppseld“ Stígvélaskortur í Eyjum og brekkusöngur í Kópavogi Þjóðhátíðarbrennunni frestað til sunnudags Stúlka flutt á sjúkrahús eftir fall í sjóinn við Reynisfjöru Herjólfur siglir ekki meira í dag Stúlka í sjóinn við Reynisfjöru „Varla gangfær“ og „skulfu eins og hríslur“ Verbúðarstemning á Hjalteyri og nóg af ástarpungum fyrir alla Mannmergð vildi sjá fyrsta konunglega breska gestinn Óveður í Eyjum og verbúðarstemning á Hjalteyri Hnífurinn reyndist grilltangir „Það var töluvert verra veður en spáin sagði“ Hávaðarok á Snæfellsnesi og Faxaflóa Læti í miðbænum og í veðrinu Stóra tjaldið fellt og hætt við brennuna vegna óveðurs Þjóðhátíðargestum hleypt inn í Herjólfshöll meðan veðrið gengur yfir Klíndu límmiðum á Ormsson sem versla ekki einu sinni við Rapyd Opnun Samverks á Hellu fagnað „Manneskja sem er komin á þetta plan hlýtur að vera rökþrota“ Þjóðarpúls Gallups: Kristrún og Þorgerður gætu myndað meirihluta án Flokks fólksins „Ég upplifi þetta sem mikinn yfirgang og ofbeldi“ Íbúar við Þjórsá æfir og þrumuveður um Versló Handtekinn með reipi um hálsinn eftir ofsaakstur á flugbraut undir áhrifum fíkniefna Búast við þrumuveðri og vatnavöxtum Ný verðskrá kindakjöts vonbrigði fyrir sauðfjárbændur Sagði foreldrana líklega hafa dottið í aðdraganda andlátsins Fjölskyldufaðir stunginn meðan sonurinn horfði á Sjá meira