Besta tækni lögð í salt með spítalanum Svavar Hávarðsson skrifar 11. desember 2013 10:18 Sóleyjartorg. Meðferðarkjarni til vinstri þar sem tækið átti að vera til húsa. Mynd/Spital
Kaup á nýjustu og bestu tækni til krabbameinslækninga eru í uppnámi eftir að áætlanir um byggingu nýs Landspítala voru settar á ís. Um er að ræða svokallaðan jáeindaskanna (PET/CT) sem stóð til að setja upp í nýjum spítala, og hefur um árabil verið staðalbúnaður á öllum sjúkrahúsum á Norðurlöndunum sem veita sömu meðferð og LSH. „Það langstærsta og mikilvægasta í tækjamálunum er jáeindaskanni sem við ekki höfum. Með þessu tæki er hægt að sjúkdómsgreina mjög vel og fylgjast með meðferð sem ekki hefur verið hægt með öðrum búnaði sem við eigum,“ segir Gísli Georgsson, umsjónarmaður viðhalds og lækningatækja LSH. „Við þurfum vissulega að vinna okkur niður listann, með kaupum á mismunandi tækjum, en þessi tækni þarf að koma hingað því við getum ekki beðið í önnur fimm eða tíu ár eftir þessu. Þá eru menn farnir að vera afskaplega aftarlega á merinni í krabbameinslækningum sem er mjög stórt hlutfall af því sem spítalinn er að fást við,“ segir Gísli. Pétur H. Hannesson, yfirlæknir á myndgreiningardeild LSH, segir tækið stórauka möguleika til greiningar á einkennum og meðferð ýmissa sjúkdóma, og þá helst krabbameina. Hann segir að öll önnur tækni í myndgreiningu sé þegar til í landinu. „Þetta er dýr tækni og viðamikið að koma þessu upp. Þess vegna átti þetta að koma með nýja spítalanum, enda þarf sérhannað húsnæði og rannsóknastofur. Nú er ekkert fyrirsjáanlegt að hann rísi og þá horfir ekki vel fyrir þessari tækni sem er nauðsynleg fyrir krabbameinslækningarnar.“ Helgi segir tæknina orðna útbreidda, og öll sjúkrahús sem bjóða krabbameinsmeðferð eins og LSH veitir hafi þennan tækjabúnað. Hins vegar fara sjúklingar til Danmerkur í þessa meðferð. „En ekki nóg, því það hentar illa upp á meðferðina. Það tekur tíma að fara út en menn vilja oft hefja meðferð sem fyrst,“ segir Pétur og svarar því játandi hvort það letji unga lækna til heimkomu að tæknin er ekki fyrir í landinu.Jáeindaskanni er staðalbúnaður í löndunum í kringum okkur, t.d. eru 30 slík tæki í Danmörku.Jáeindaskanni kostar á annan milljarð Tækið kostar á annan milljarð króna og útheimtir sérstakt húsnæði, en tæknin var hugsuð sem hluti af meðferðar- og bráðakjarna nýs Landspítala. Tækið er notað við frumgreiningar, mat á endurkomu, mat á árangri meðferðar og fyrir geislameðferð illkynja sjúkdóma. Meðal ábendinga fyrir jáeindaskanna er t.d. mat á því hvort hnútur í lunga sé illkynja og leit að duldu illkynja æxli. Stöðugt bætast við krabbamein þar sem sýnt hefur verið fram á notagildi aðferðarinnar. Jáeindaskanninn breytir þeirri meðferð sem stór hluti sjúklinga fær við sjúkdómi sínum. Þetta leiðir til þess að læknar og sjúklingar gera kröfu um að aðferðin sé aðgengileg. Þótt tæknin sé dýr mun jáeindaskanni hafa jákvæð áhrif á kostnað í heilbrigðiskerfinu þar sem nákvæmari greining mun leiða til markvissari meðferðar, minni lyfjakostnaðar og mögulegt verður að fækka ónauðsynlegum skurðaðgerðum vegna betri greiningar.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Sjá meira