Enski boltinn

Emil samdi við Brighton

Emil ánægður með treyju félagsins.
Emil ánægður með treyju félagsins.
Unglingalandsliðsmaðurinn Emil Ásmundsson skrifaði í dag undir tveggja og hálfs árs samning við enska félagið Brighton & Hove Albion.

Emil, sem er 18 ára miðjumaður, kemur til félagsins frá Fylki. Hann hefur spilað 6 leiki fyrir Fylki í efstu deild og skorað eitt mark.

"Það skiptir mig miklu máli að fá tækifæri hjá Albion. Ég er að fá tækifæri hjá stóru félagi. Andrúmsloftið hér er frábært og félagið er á réttri leið," segir Emil í viðtali við heimasíðu félagsins.

"Það eru meiri gæði hér en í íslenska boltanum þannig að þetta er stórt skref fyrir mig."

Emil spilar sinn fyrsta leik fyrir unglingalið félagsins á laugardag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×