Ólafur hafnaði danska landsliðinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. maí 2013 12:15 Ólafur á æfingu hjá Val. Mynd/Stefán
Ólafur Stefánsson staðfesti við danska fjölmiðla í dag að honum hafi boðist að taka við þjálfun danska karlalandsliðsins í handbolta. „Wilbek hringdi í mig og spurði hvort ég vildi gerast þjálfari danska landsliðsins,“ sagði Ólafur í samtali við BT. „Ég afþakkaði en sagði honum að þetta væri mikill heiður fyrir mig. Ástæðan var fyrst og fremst sú að ég taldi mig þurfa tíma og rúm til að skipuleggja framtíð fjölskyldu minnar,“ sagði Ólafur en hann tók nýverið við þjálfun Vals og mun stýra liðinu næstu tvö árin. „Ég vildi þar að auki starfa sem þjálfari sem hefur dagleg samskipti við leikmenn í gegnum allt tímabilið.“ Wilbek staðfesti að hann hefði rætt við Ólaf fyrir um hálfu ári síðan. „Það veit þó enginn hvað hefði gerst hefði hann sagt já, því það eru fleiri sem koma að þessari ákvörðun. Það voru líka aðrir sem komu til greina.“ Ólafur sagði einnig að hefði hann tekið starfinu hefði hann mögulega byrjað strax á HM í Spáni. Wilbek segir það hafa verið mögulegt en að það hefði allt eins verið líklegt að Ólafur hefði verið aðstoðarmaður hans fyrst um sinn. Framtíð Wilbek er enn í óvissu en líklegast er að hann muni hætta með danska landsliðið eftir EM í Danmörku á næsta ári.
Handbolti Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira