Grunlaus hópur albanskra flóttamanna hnepptur í varðhald: Verða sendir burt á næstu dögum María Lilja Þrastardóttir skrifar 8. október 2013 19:17
Í kvöldfréttum í gær sögðum við frá ákvörðun Innanríkisráðuneytisins að vísa úr landi fjórum barnafjölskyldum frá Albaníu. Í dag var öðrum hópi Albana einnig gert, fyrirvaralaust, að fara af landi brott. Mennirnir mættu að sögn lögmanna, grunlausir á fund hjá Ríkislögreglustjóra, voru hnepptir í varðhald sem þeir munu að öllum líkindum sitja þangað til þeir verða fluttir burt af yfirvöldum á næstu dögum. Helga Vala Helgadóttir er lögmaður eins þeirra. „Þeir fá ekki að dvelja hér á meðan innanríkisráðuneytið úrskurðar um það hvort að ákvörðun útlendingastofnunar hafi verið réttmæt eða ekki. Þetta er auðvitað allt með ólíkindum afþví að í fyrsta lagi þá er kveðið um það í flóttamannasamningi að þeir sem sækja um hæli og fá synjun, eigi rétt á því að bera þá ákvörðun undir æðra stjórnvald. Þar stendur einnig skýrt að leifa eigi viðkomandi að dvelja í ríkinu á meðan stjórnvöld taka þá ákvörðun,“ segir Helga Vala. Hún segir málinu svipa mikið til máls Króatísku fjölskyldnanna sem voru sendar aftur til heimalandsins fyrr á árinu en þá beitti ráðuneytið með sama hætti frestun réttaráhrifa. „Ég sé ekki hvernig við ætlum að svínbeygja allar reglur og mannréttindi gagnvart fólki bara af því það er af einhverju ákveðnu þjóðerni. Við erum að horfa á þetta í annað skipti á þessu ári.“ Skjólstæðingur Helgu Völu var einnig á meðal þeirra sem handteknir voru í stórri lögregluaðgerð í Kópavogi fyrir skemmstu. „Þetta er frekar óhugnalegt afþví að fyrir hálfum mánuði þá ruddist sérsveit lögreglu inn á heimili hjá mínum umbjóðanda og fleirum sem voru þar í fasta svefni. Hann var í haldi í sjö átta klukkustundir og fékk hvorki að tala við túlk né lögmann, þrátt fyrir að lögbundið sé á Íslandi að handtekinn maður eigi rétt á slíku.“ Lögregla hefur sagt þessar aðgerðir hafa verið vegna gruns um fíkniefnavörslu og varðveislu þýfis. Ekkert slíkt fannst þó á albönsku mönnunum.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira