Kostnaður við nýja byggingu MS rúmlega milljarður Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 8. október 2013 16:14 Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Jón Gnarr borgarstjóri undirrituðu í gær samning ráðuneytisins og borgarinnar um viðbyggingu við Menntaskólann við Sund. mynd/Menntamálaráðuneytið
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Jón Gnarr borgarstjóri undirrituðu í gær samning ráðuneytisins og borgarinnar um viðbyggingu við Menntaskólann við Sund. Samningurinn kveður á um viðbyggingu og endurbætur á húsnæði skólans við Gnoðarvog. Ákveðið var að fara í brýnustu framkvæmdir við Menntaskólann við Sund. Þessar brýnustu framkvæmdir fela í sér stækkun skólans í samræmi við nemendafjölda auk bætts aðgengis milli álma skólans, sem eru frá ýmsum tímum. Aðgengi fyrir fatlaða verður bætt með uppsetningu tveggja lyfta í húsið. Eins og fram kom á Vísi þegar gamla byggingin við skólann var rifin hefur staðan í skólanum verið sú að það hefur í raun verið útilokað fyrir fatlaða og hreyfihamlaða að komast um skólann, engar lyftur hafa verið i skólanum hingað til og byggingin er á mörgum hæðum eða plönum. „Þetta er búið að vera skelfilegt ástand í raun og veru og merkilegt að þetta hafi viðgengist svona lengi,“ sagði Már Vilhjálmsson, rektor við Menntaskólann við Sund. „Opinberar stofnanir eiga að hafa aðgengi fyrir fatlaða og við höfum lent í vandræðum vegna þessa og einnig þegar nemendur fótbrotna þá komast þeir ekki um skólann.“ Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdirnar eru um 1.1 milljarður króna. Miðað er við að viðbyggingin verði tilbúin til innflutnings haustið 2015.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira