Meðlagsþiggjendur rukkaðir vegna ofgreiðslu Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 25. október 2013 16:12 „
Ef um ofgreiðslu er að ræða af einhverjum orsökum er meðlagsþiggjandi endurkrafinn um það sem ofgreitt var.“ Þetta kemur fram á heimasíðu Tryggingastofnunar. Þar segir einnig að Innheimtustofnun sjái um að innheimta greitt meðlag hjá meðlagsskyldum aðila. Eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 og á Vísi hefur ríkið hugsanlega ofrukkað alla meðlagsgreiðendur um mánuðinn þegar börn þeirra ná 18 ára aldri, en þá lýkur framfærsluskyldu samkvæmt lögum. Meðlagsgreiðandi sem lét á þetta reyna fékk meðlag endurgreitt. Árni Helgason lögmaður lét reyna á það fyrir hönd umbjóðanda síns sem er meðlagsgreiðandi, hvort það stæðist að rukka fullt meðlag fyrir mánuðinn þegar börn ná átján ára aldri. Málið fór fyrir Úrskurðarnefnd almannatrygginga sem féllst nýlega á að um ofrukkun hefði verið að ræða. „Ég hef miklar efasemdir um að þetta standist,“ segir Árni um það að endurkrefja eigi meðlagsþiggjendur um það sem þau fengu ofgreitt. Hann segir það undarlega nálgun að þegar í ljós komi að ríkið hafi gert mistök, að það ætli að rukka þá um endurgreiðslu, sem tóku við greiðslunni í góðri trú. Jafnvel fyrir einhverjum árum síðan. Hann telur að slíkt geti dregið úr því að fólk leiti réttar síns. Það geti verið óþægilegt fyrir meðlagsgreiðandann að vita að ef hann fer fram á endurreiðslu að hitt foreldrið, sem barnið búi jafnvel enn hjá, sé rukkað vegna ofgreiðslu. Árni segir að í þeim dómum eða dæmum sem reynt hafi á það að endurkrefja meðlagsþiggjendur, hafi slíkt yfirleitt ekki borið árangur. Þótt það hafi ekki verið fullkomlega sambærilegar aðstæður þá sé horft til þess í slíkum tilfellum að meðlagsþiggjendur hafi tekið við greiðslum í góðri trú og að það gæti verið þungbært að innheimta slíkur greiðslur síðar.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Sjá meira