Þarf meiri samkeppni í vörninni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. ágúst 2013 15:00 Mynd/Vilhelm
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Íslands, segir íslenska landsliðið þurfa meiri samkeppni meðal varnarmanna um sæti í byrjunarliðinu.Svíinn geðþekki valdi Jóhann Laxdal úr Stjörnunni og Kristinn Jónsson úr Breiðabliki voru valdir í hópinn fyrir æfingaleikinn gegn Færeyingum á miðvikudaginn. Jóhann er hægri bakvörður og en Kristinn spilar vinstra megin. „Við þurfum fyrst og fremst varnarmann og sérstaklega bakverði," segir Lagerbäck um ákvörðunina að velja Jóhann og Kristinn í hópinn. „Þeir eru ungir og geta vonandi bætt sig enn frekar. Kannski eru þeir klárir að berjast um sæti í byrjunarliðinu." Fyrir utan Jóhann og Kristinn er Hannes Þór Halldórsson eini leikmaðurinn í hópnum sem leikur með liði hér á landi. Að sögn Lagerbäck voru aðrir leikmenn íslenskra liða ekki nálægt því að komast í hópinn. „Okkur finnst nokkrir leikmenn athyglisverðir en sama gildir um nokkra leikmenn erlendra liða." Aron Einar Gunnarsson er ekki í leikmannahópi Íslands vegna axlarmeiðsla sinna. Þá er Birkir Már Sævarsson örlítið spurningamerki þar sem styttist í að kona hans eigi barn. Lagerbäck opnaði fundinn á því að halda stutta tölu um Aron Jóhannsson og ákvörðun hans að velja bandaríska landsliðið fram yfir það íslenska. „Við vorum í samskiptum við hann nánast allt frá því ég tók við landsliðinu. Mér fannst samskiptin góð og ég hvatti hann til að velja Ísland," segir Lagerbäck. Nú hafi Aron hins vegar valið Bandaríkin og lítið sé hægt að gera við því. Björn Bergmann Sigurðarson, leikmaður Wolves, hefur ekki gefið kost á sér í íslenska landsliðið í nokkurn tíma. Lagerbäck segist þó ekki hafa gefist upp á Skagamanninum. „Ég ræddi nýlega við einn nákominn honum," segir Svíinn. Hann segist ætla að bíða og fylgjast með frammistöðu Björns hjá Wolves. Úlfarnir spila nú í C-deildinni á Englandi. „Hinir fjórir eru á undan honum í röðinni í augnablikinu," sagði Lagerbäck. Á hann þar við Alfreð Finnbogason, Arnór Smárason, Eið Smára Guðjohnsen og Kolbein Sigþórsson.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Fámáll um orðrómana Íslenski boltinn „Sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum“ Fótbolti Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Enski boltinn „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Sjáðu sturlað mark Tómasar, rassamark Vals og tvennur Galdurs og Benedikts Slagsmál á æfingu trufluðu ekki: „Litlar stimpingar með stórum afleiðingum“ Fámáll um orðrómana „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ „Allir orðnir vinir í skóginum“ „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Þróttur tryggði sig í úrslitaleikinn „Mótið í rauninni búið“ „Við komum svo voða skrítnir inn í seinni hálfleikinn“ „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ „Fannst dómarinn missa svolítið tökin á leiknum” Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-0 | Warén jók á áhyggjur Eyjamanna Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Markaskorari Vals óviss um framtíð sína Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 4-1 | Valsmenn ekki í vandræðum með Þórsara Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Þróttarar brutu bikarinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR KR upp í Bestu deildina MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Sjá meira