Endalokin nálgast hjá embætti sérstaks saksóknara Þorbjörn Þórðarson skrifar 2. október 2013 18:57
Framlög til sérstaks saksóknara verða skorin niður um 700 milljónir króna í fjárlögum næsta árs. Gert er ráð fyrir að það dragi verulega úr starfsemi embættisins á árinu 2014. Útgjöld til annarra löggæslustofnana eru hins vegar aukin. Löggæslustofnunum er að mestu hlíft við niðurskurði í fjárlagafrumvarpinu. Ef við skoðum útgjöld til nokkurra stofnana þá sést að framlög til ríkislögreglustjóra eru aukin um þrjú og hálft prósent frá fjárlögum þessa árs. Útgjöld til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu aukast um 4,6 prósent og Landhelgisgæslunnar um 2,4 prósent. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum fær rúmlega 1,1 milljarð króna og aukast útgjöld um 8 prósent milli ára. Þá er myndarleg hækkun vegna málefna hælisleitenda í samræmi við gefin fyrirheit þar um en útgjöld vegna málaflokksins nema 308 milljónum og er það hækkun um 283 prósent frá fjárlögum þessa árs. Í öllum tilvikum eru verðlagshækkanir inni í fjárhæðum en þetta sýnir svart á hvítu þá afstöðu ríkisstjórnarinnar að standa vörð um öryggis- og löggæslumál. Í fjárlögum 2012 námu útgjöld til sérstaks saksóknara rúmlega 1,3 milljörðum króna. Þau voru svo skorin niður í 849 milljónir króna á þessu ári en verða 559 milljónir króna í fjárlögum næsta árs.Dregur úr umfangi embættis sérstaks saksóknara Eiginlegur niðurskurður í fjárlögum næsta árs til embættis sérstaks saksóknara nemur hins vegar um 700 milljónum króna sé tekið mið af ríkisreikningi en embættið átti uppsafnaðar fjárheimildir í fyrra upp á 487 milljónir sem bættust við 849 milljóna króna framlag. Útgjöld ríkissjóðs vegna embættisins lækka því úr 1,2 milljörðum króna í 559 milljónir. Í fjárlagafrumvarpinu segir: "Á árinu 2014 er síðan gert ráð fyrir að draga muni verulega úr umfangi (embættisins) þegar mörgum af þeim málum sem embættið hefur unnið að lýkur." Frá því embætti sérstaks saksóknara var sett á laggirnar 2009 hefur því verið veitt samtals 4.988 milljónum króna vegna verkefna sem tengjast hruni fjármálakerfisins á Íslandi. Samkvæmt lögum um embættið gat innanríkisráðherra lagt það niður að fenginni umsögn ríkissaksóknara frá 1. janúar síðastliðnum.Framtíðin embættisins ákveðin í október Um þessi atriði segir í fjárlagafrumvarpinu: „Á árinu mun innanríkisráðuneytið vinna náið með embætti sérstaks saksóknara vegna fjárhagslegs uppgjörs embættisins, með það að markmiði að vel takist að ljúka þeim rannsóknum og verkefnum sem sérstakur saksóknari hefur með höndum. (....) Starfshópur hefur verið að störfum sem fékk það hlutverk að endurskoða skipulag og tilhögun rannsókna og saksóknar í efnahagsbrotamálum og leggja fram tillögur að hagfelldu heildarskipulagi slíkra rannsókna innan einnar stofnunar í þeim tilgangi að gera þær skilvirkari og markvissari og tryggja sem besta nýtingu fjármuna sem ætlaðir eru í þessu skyni. Vonast er til að skýrsla hópsins liggi fyrir í október og verða þá ákvarðanir teknar um framhaldið.“ Engin sparnaðarkrafa er gerð til sýslumannsembætta á landsbyggðinni og eru útgjöld í flestum tilvikum aukin. Loks má nefna að í frumvarpinu er lagt til að veita 500 m.kr. til eflingar almennrar löggæslu í landinu.
Mest lesið Veðurvaktin: Biðja fólk að halda sig heima í kvöld Veður Karlmaður lést í Bláa lóninu Innlent Ungur Miðflokksmaður gengst við rasisma og segir af sér Innlent Flugmaðurinn sem fórst millilenti oft í Reykjavík Innlent Snjókoman rétt að byrja Innlent Eldur í blokk við Ljósheima Innlent Bílar út af veginum á Reykjanesbraut Innlent Biðu í fjóra tíma úti á braut og aðra fjóra við farangursbeltin Innlent Hvatt til varúðar vegna snjóflóðahættu á suðvesturhorninu Innlent Ráðgjafinn ráðinn í tímabundið starf eftir dýra skreppitúra Innlent Fleiri fréttir Ráðgjafinn ráðinn tveimur dögum eftir að grennslast var fyrir um málið „Alvöru“ jólasveinn gisti á Hótel Rangá Vesturbæjarlaug opnuð enn eina ferðina eftir viðgerðir Verklagi ábótavant og krefur ríkislögreglustjóra skýringa Mæla með því að farþegar reiði sig ekki á tímaáætlanir Snjókoman mikla, ábótavant verklag ríkislögreglustjóra og jólasveinamót Karlmaður lést í Bláa lóninu Biðu í fjóra tíma úti á braut og aðra fjóra við farangursbeltin Kærðu umdeildar framkvæmdir allt of seint Skellt í lás í sundlaugum borgarinnar vegna veðurs Reglur brotnar og þjónusta sem bjóða ætti út Þarf að borga bætur þrátt fyrir breytingar á hlaupahjólinu Hvatt til varúðar vegna snjóflóðahættu á suðvesturhorninu Meiri kvika en í síðasta gosi Eldur í blokk við Ljósheima Flugmaðurinn sem fórst millilenti oft í Reykjavík Halla leiðir krabbameinsráð ráðherra Snjókomumet og umferðaröngþveiti Segir sameiginlegum gildum Norðurlanda ógnað Fjölmargir farþegar fastir í flugvélum á Keflavíkurflugvelli Ungur Miðflokksmaður gengst við rasisma og segir af sér Sturlað ástand og United vettlingar prjónaðir í bílnum Mesta snjódýpt í Reykjavík sem mælst hefur í október Viðbragðsaðilar í mikilli hættu vegna bíla á sumardekkjum Bílar út af veginum á Reykjanesbraut Vill heimila Samkeppniseftirlitinu að ráðast í húsleitir Snjókoman rétt að byrja Píratar berjist gegn „rísandi bylgju lýðskrums og fasisma“ Skvísur geti virkað sem hálfgerðir þroskaþjófar Ráðgjafinn ráðinn í tímabundið starf eftir dýra skreppitúra Sjá meira