Umfjöllun og viðtöl: Þór - Stjarnan 1-1 Ólafur Haukur Tómasson á Akureyri skrifar 23. júní 2013 00:01
Leikurinn byrjaði með látum en strax á þriðju mínútu komst Ólafur Karl Finsen í ákjósanlegt skallafæri en Srdjan Rajkovic kom boltanum frá marki með sannkallaðri sjónvarpsvörslu enda leikurinn í beinni á Stöð2 Sport. Stuttu seinna fengu gestirnir horn og boltinn endaði í netinu en Magnús Þórisson hafði þá flautað á brot í teignum og markið taldi því ekki. Heimamenn voru langt frá því að vera sáttir þegar þeir vildu meina að Robert Sandnes hafi brotið á Jóhanni Þórhalls en dómari leiksins var ekki sammála því. Hefði hann dæmt þá hefði víti og rautt verið það eina sem hefði komið til greina og því um stóra ákvörðun að ræða. Föstu leikatriðin voru að reynast heimamönnum erfið í leiknum enda kom fyrsta mark leiksins úr slíku. Eftir hornspyrnu barst boltinn inn í teig þar sem veigar Páll kom á sprettinum og fleytti boltanum áfram laglega í fjærhornið. Þó að föstu leikatriðin hafi verið að reynast Þórsurum erfið varnarlega þá voru þeir að skapa hættu sóknarlega með góðum spyrnum Mark Tubæk og það var einmitt eftir eina slíka sem Hlynur Atli Magnússon jafnaði leikinn stuttu fyrir hálfleik. Eftir nokkuð rólegar fyrstu tuttugu mínútur í seinni hálfleik lifnaði yfir leiknum. Edin Beslija komst í ágætis skotfæri en skot hans fór yfir markið. Efir að Ingvar Jónsson hafi sparkað boltanum frá marki lá Ármann Pétur Ævarsson óvígur eftir viðskipti við Veigar Pál. Magnús Þórisson var alveg viss í sinni sök og sýndi Veigari rauða spjaldið en hann virtist fara með hendina í andlitið á Ármanni, Stjörnumenn því færri síðustu þrjátíu mínútur leiksins. Brottreksturinn virtist þó hafa takmörkuð áhrif á Stjörnumenn sem héldu áfram sínum leik og jafnvel bara bættu í ef eitthvað er sem skildi vörnina eftir nokkuð óvarða fyrir skyndisóknum heimamanna. Föstu leikatriðin voru þó þeirra helsta vopn enda áttu heimamenn í bullandi vandræðum með að verjast þeim. Bæði lið fengu sín færi til að ná í öll þrjú stigin en allt kom fyrir ekki og jafntefli varð niðurstaðan eftir fjörugan og skemmtilegan leik. Páll Viðar: Ég held að menn hafi tekið til í hausnum á sér,,Ég reyni að geyma hrokann og þakka fyrir öll stig sem við náum í en auðvitað hefðum við viljað sigurinn en sterkt að koma til baka og loka þessum flóðgáttum sem hafa verið á markið hjá okkur í undanförnum leikjum og ég er sáttur með það sem menn lögðu á sig". ,,Við áttum svo sannarlega tækifæri á að skora markið sem hefði skilið liðin að en þar sem við höfum verið að leka inn mikið af mörkum erum við ekki alveg að henda öllum fram því við verðum líka að vera varkárir". ,,Við breyttum svo sem ekki miklu [varðandi varnarleikinn] öðru heldur en því að ég held að menn hafi tekið til í hausnum á sér og við þurftum að fá meira fram í baráttu og vilja og menn voru til í að slást fyrir markinu okkar í dag og ég er ánægður með það," sagði Páll Viðar, þjálfari Þórs, eftir leikinn. Logi: Auðvitað hefur þetta mikil áhrif á niðurstöðu leiksins,,Þórsliðið er gott lið og þeir spiluðu betri vörn en þeir gerðu gegn okkur síðast og gegn Fram og það var yfirlýst markmið hjá þeim, að mér skilst, að vinna í því en samt sem áður eigum við ágætis færi í leiknum og erum ekki nógu góðir í að nýta okkur möguleikana og veikleikana sem við vissum að væru til í liðinu". ,,Mér fannst við vera svona frekar værukærir og hefðum getað gert betur en við gerðum en það var eitthvað slen yfir okkur. Það var svolítið vendipunktur fyrir okkur [rauða spjald Veigars Páls] að því leitinu til að við gátum ekki lagt eins mikið í okkar sóknarleik og við viljum og erum einum færri í 25 mínútur eða eitthvað slíkt svo það er erfitt að ætla að fara og sækja og skora". ,,Þrátt fyrir allt þá áttum við færi og auðvitað hefur þetta mikil áhrif á niðurstöðu leiksins, það er alveg ljóst," sagði Logi Ólafsson, þjálfari Stjörnunnar eftir leikinn. Veigar Páll: Ég veit ekki hvernig reglurnar eru,,Þeir spila svolítið mikinn varnarbolta, erfitt að brjóta upp vörnina þeirra og þeir gerðu vel, þeir gerðu akkúrat það sem þeir ætluðu að gera og uppskáru eitt stig úr því". ,,Svona er fótboltinn. Ég er ekkert alveg öruggur á því að þetta sé rautt spjald, ég fer með olnbogann í hann en það var ekkert meiningin að gefa honum olnbogaskot. Ég ætlaði að skýla boltanum og komast framfyrir hann en eins og ég segi, ég veit ekki hvernig reglurnar eru en dómarinn metur þetta sem rautt spjald," sagði Veigar Páll Gunnarsson, markaskorari Stjörnurnar í leiknum. Hlynur Atli: Ég vildi meira úr þessum leik,,Við fengum náttúrulega mark á okkur úr föstu leikatriði sem er ekki gott". ,,Þeir eru náttúrulega með stóra menn en við erum svo sem líka með stóra menn og þetta á náttúrulega ekki að gerast en í dag var kannski jákvæðari varnarleikur". ,,Við lögðum bara upp með það að spila aðeins þéttara aftarlega og verjast sem heild og ég held að það hafi virkað ágætlega í dag. Stjarnan er eitt heitasta liðið í dag og jafntefli við þá eru í sjálfu sér góð úrslit þannig séð". ,,Ég vildi meira úr þessum leik þó að jafntefli séu líklega góð úrslit fyrirfram. Við mætum fullir sjálfstrausts í næsta leik". ,,Það er ekki á hverjum degi en maður skorar. Ég er nú búinn að skora þrjú tímabil í röð eitt mark á leiktíð. Ég ætla að venjast einhverju betra og ég ætla að skora fleiri mörk," sagði Hlynur Atli Magnússon, markaskorari Þórs í leiknum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gerðu Bellingham að stórstjörnu og kaupa nú bróður hans Sport „Ég er aldrei sáttur“ Fótbolti Fóru yfir endurkomu Söndru: „Þetta er bara besti bitinn“ Fótbolti Shai setti stigamet þegar OKC jafnaði úrslitaeinvígið Körfubolti Greindi sjálfur frá því að hann hafi verið rekinn Fótbolti Fyrsti svarti dómari ensku úrvalsdeildarinnar látinn Fótbolti Portúgal Þjóðadeildarmeistari eftir vítakeppni Fótbolti Sunneva lagði upp fyrir framan metfjölda áhorfenda Fótbolti Dagskráin í dag: Landsleikir og íshokkí Sport Tók við verðlaunum merktur Aroni sem var veikur heima Handbolti Fleiri fréttir Landsliðskonan reddaði málunum fyrir leik á Kópavogsvelli Vilja sjá Þórólf hugsa líka um konurnar: „Gæti gert þetta að ríkasta liði landsins“ Sjáðu frábært liðsmark FH, markaveislu Blika og Þrótt halda sig á toppnum Leik lokið: Þróttur - Þór/KA 2-0 | Þróttur með þriggja stiga forskot á toppnum Uppgjör: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar sannfærandi Uppgjörið: Breiðablik-FHL 6-0 | Sex Blikakonur á skotskónum Uppgjörið: Víkingur-FH 1-4 | Eintóm hamingja hjá FH-konum í Víkinni Gummi Ben fékk gullmerki Þórs afhent á Spáni Blómstra á meðan Valskonur eru sögulega slakar Framlengja við markahæsta manninn sinn Uppgjörið: Tindastóll-Valur 2-2 | Bið Valskvenna lengist enn Brynjar Björn í þjálfarateymi Víkings Caroline kveður Þrótt og heldur heim til Bandaríkjanna Sjáðu fimm flottustu mörk maímánaðar Leiknir byrjar vel undir stjórn Gústa Gylfa og ÍR-ingar á toppinn Andri Már fékk tískuráð á stórleiknum á Kópavogsvelli Völdu þann leikmann í Bestu deildinni sem er líkastur þeim sjálfum Ágúst Gylfason snýr aftur í boltann og tekur við Leikni „Þá verður þú bara að taka höggin“ Bönnin þegar Besta hefst aftur: Víkingar missa lykilmann og Vestri án tveggja Pétur Rúnar á bekknum hjá Stólunum í 3. deildinni Ummæli Davíðs Smára ekki á borði aganefndar Sýndu reiði Davíðs skilning en fannst hann fara yfir strikið „Okkar markmið hefur alltaf verið að vera í toppbaráttunni“ Umfjöllun: Valur-Fram 2-1 | Níu stig í Valshúsi á níu dögum Sjáðu miðjumark Sverris, tvennu Tobiasar, rautt á Alex og Atla stela sigri Dagskráin í dag: Litrík umferð gerð upp í Stúkunni „Þetta mark átti ekki að telja“ Leik lokið: Breiðablik - Víkingur 3-1 | Allt í hnút á toppnum „Erum með sjö stigum meira en á sama tíma í fyrra“ Sjá meira