Njálgssmitum fjölgar Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar 23. september 2013 19:00
Tilfellum af njálg hefur fjölgað verulega, hér á landi undanfarin ár, en handþvottur og almennt hreinlæti eru besta leiðin til að sporna við smiti. Njálgur er hvítur og lítill þráðormur sem sest að í endaþarmi fólks og veldur í mörgum tilfellum miklum kláða. Mörg börn smitast á ári hverju en ormurinn er þó ekki einskorðaður við þau og getur lagst á alla. Ása St. Atladóttir, hjúkrunarfræðingur og verkefnisstjóri sýkingavarna hjá Landlæknisembættinu, segir að algengast sé að smit komi upp í barnafjölskyldum og hjá þeim sem vinna með börnum. Mikil aukning hefur orðið á tilfellum af njálg undanfarin ár en 2007 og 2008 voru rúmlega 200 tilfelli skráð hjá Landlæknisembættinu. Árið 2009 voru þau svo orðin 759. Á síðasta ári voru um 1600 tilfelli tilkynnt og það sem af er þessu ári eru þau orðin rúmlega 1300. Taka verður mið af því við skoðun talna um fjölda skráðra smita að bætt tölvuvinnsla og utanumhald gagna hjá embættinu undanfarin ár hefur orðið til þess að yfirsýnin er orðin betri um hvað læknar landsins eru að greina. Mesta hættan á njálgssmiti er á morgnana þar sem að kvenormurinn verpir eggjum við endaþarm fólks á nóttunni og vegna kláða sem stafar af því er hætta á að fólk klóri sér og smit berist svo með höndum. Þegar grunur leikur á smiti er best að skoða endaþarmsopið snemma morguns og ef um barn er að ræða þá er best að gera það áður en það vaknar. Til að ráða niðurlögum njálgs þarf lyfjameðferð en besta smitvörnin er handþvottur og almennt hreinlæti. „Það er mjög gott að setja börn sem að eru með þessi einkenni og náttúrulega bara alla í sturtu á morgnana. Skipta oft um nærföt og náttföt og þvo þau á góðum hita í þvottavélinni“ segir Ása.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Sjá meira