Brýn þörf á nýrnalæknum á LSH Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 30. september 2013 18:15
Tvö af fimm stöðugildum sérfræðinga í nýrnateymi Landspítalans eru nú ómönnuð. Yfirlæknir nýrnalækninga segir þörf á endurskipulagningu á grunnþjónustu Landspítalans til að laða að unglækna. Hann treystir nýjum forstjóra spítalans til að stappa stálinu í starfsfólk hans. Lyflækningasvið er stærsta svið Landspítalans og með fjölbreytta starfsemi sem tekur til margra af algengustu sjúkdómum landsmanna. Með hækkandi aldri hefur aukin þungi færst í starfsemi sviðsins, á sama tíma og starfsmönnum. Nýrnalæknar hafa ekki farið varhuga af þessari þróun. Nýrnateymi Landspítalans gegnir miðlægu hlutverki í lyflækningum og sér um lífsnauðsynlega meðferð á seinni stigum veikinda. Fimm sérfræðingar eiga að skipta þetta teymi en nokkuð hefur kvarnast úr þessum hópi undanfarið. Nú eru þrír sérfræðingar eftir í teyminu og því mæðir mikið á þeim sem eftir eru. „Sem stendur erum við að sinna sömu þjónustu og áður,“ segir Runólfur Pálsson, yfirlæknir nýrnalækninga. „En auðvitað hefur maður af því hvernig það mun ganga.“ Mannekla meðal sérfræðinga er verulegt vandamál innan spítalans enda eru önnur og ekki síður mikilvæg læknateymi sem eiga nú erfitt með að fylla sín stöðugildi. Runólfur er sannfærður um að hægt sé að ráðast í endurskipulagningu á grunnþjónustu spítalans. Þetta sé sá grunvöllur sem þurfi til að vekja áhuga unglækna á að vinna við spítalann og gera hann samkeppnishæfan. „Gríðarlega mannekla í röðum ungra lækna hefur mikil áhrif á okkar störf. Ég held að það sé algjört grundvallar atriði að reyna að koma framhaldsmenntun lækna í fullnægjandi horf á ný. Þannig að ungir læknar sæki hingað í störf.“ Runólfur ítrekar að sóknarfæri felist í endurskipulagningu á starfsemi spítalans, með því að þétta starfsemi hans og straumlínulaga fyrstu skref í meðferð sjúklinga, t.d. í gegnum eflt hlutverk Heilsugæslunnar. Það sé verkefni nýs forstjóra, Páls Matthíassonar, að virkja þessa möguleika, þó svo að erfiðleikarnir varðandi fjármagn fari síst minnkandi. „Ef að fjárframlög til stofnunarinnar munu ekki aukast umtalsvert þá verður þetta augljóslega mjög erfiður og þungur róður. Ég treysti Páli vel til að reyna að ná mannskapnum til að takast á við þetta erfiða verkefni og finna lausnir,“ segir Runólfur að lokum.
Mest lesið Keyrði á móti umferð á Reykjanesbraut Innlent Viðsnúningur og Helgi Bjartur færður bak við lás og slá Innlent Akademískir starfsmenn lýsa yfir vantrausti á rektor Innlent Forstjóri Deloitte ákærður fyrir kynferðisbrot Innlent Grín sendiherrans ógni Íslandi Innlent Ólafur Ragnar við CNBC: Afleiðingarnar „gífurlegar“ ef Bandaríkin tækju Grænland með valdi Erlent Fékk 69 milljónir króna fyrir söluna Innlent Hætta vinnslu umsókna innflytjenda frá 75 ríkjum Erlent Vilja geta sett herlög á eyju norðan Íslands Erlent Slapp óvænt við fangelsi og braut ítrekað á stjúpdóttur sinni Innlent Fleiri fréttir Forstjóri Deloitte ákærður fyrir kynferðisbrot Krónan standi í vegi fyrir innviðaframkvæmdum Fífilsgata verður Túnfífilsgata en ekki Hlíðarfótur „Þarna var ákveðið að verja ekki börnin“ Börnin hafi ekki sætt illri meðferð í skilningi laga „Markmiðið var aldrei að kaupa eign til að selja með hagnaði“ Bein útsending: Kynna skýrslu um starfsemi vöggustofu Grín sendiherrans ógni Íslandi Stórstjörnur í briddsheiminum á leið til landsins Vægur dómur yfir ofbeldismanni gagnrýndur og Bandaríkjamenn sakaðir um virðingarleysi Fékk 69 milljónir króna fyrir söluna Fyrrverandi þingmaður vill oddvitasæti á Akureyri Vilja stækka friðlýst svæði á Gróttu og Seltjörn Rúmlega tveir af hverjum þremur Mýrdælingum erlendir Leggja afnám áminningarskyldu fyrir þingið Keyrði á móti umferð á Reykjanesbraut Geti ekki haldið áfram að fjölga læknanemum samhliða aðhaldskröfu Akademískir starfsmenn lýsa yfir vantrausti á rektor Slapp óvænt við fangelsi og braut ítrekað á stjúpdóttur sinni Viðsnúningur og Helgi Bjartur færður bak við lás og slá Á batavegi eftir alvarlega líkamsárás á Höfða Léttara yfir formanninum eftir þriggja tíma fund Fékk afa sinn með sér á skólabekk Lögregluaðgerð beint gegn áfengissölu í Kópavogi Boðaður á fund í ráðuneytinu með stuttum fyrirvara Sögulegur fundur um framtíð Grænlands Tveir fulltrúar taka þátt í aukinni hernaðarviðveru Tveir handteknir vegna alvarlegrar líkamsárásar Kaus að styðja karlasamtök í stað lögreglu Ræddu undanþágu losunarheimilda Sjá meira
Ólafur Ragnar við CNBC: Afleiðingarnar „gífurlegar“ ef Bandaríkin tækju Grænland með valdi Erlent
Ólafur Ragnar við CNBC: Afleiðingarnar „gífurlegar“ ef Bandaríkin tækju Grænland með valdi Erlent