Hallinn langt umfram áætlanir 30. september 2013 18:28
Halli ríkissjóðs á undanförnum árum hefur verið helmingi meiri en áætlanir fjárlaga gerðu ráð fyrir. Munurinn hleypur á tugum milljarða. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mun kynna fyrsta fjárlagafrumvarp nýrrar ríkisstjórnar á morgun en þá kemur Alþingi saman á ný. Frumvarpið mun endurspegla helstu áherslur ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum til næstu ára. Bjarni er þegar búinn að lýsa því yfir að hann muni boða breytingar á tekjuskattskerfinu sem á að framkvæma í áföngum á kjörtímabilinu. Skattar á láglauna- og millitekjufólk verða ekki hækkaðir og þá kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær að ekki stendur til að draga úr fjárframlögum vegna reksturs Landspítalans. Ríkisstjórnin boðað strax í vor flatan 1,5% niðurskurð sem nær til allra ráðuneyta og eru mennta- og heilbrigðismál ekki undanskilin. Á fyrstu sex mánuðum þessa árs var ríkissjóður rekinn með rúmlega 22 millljarða króna halla. Í fjárlögum er hins vegar gert ráð fyrir halla upp á tæpa 4 milljarða. Í raun hafa áætlanir um afkomu ríkissjóðs sjaldan verið í samræmi við endanlega niðurstöðu. Árið 2009 var gert ráð fyrir halla upp á rúma 153 milljarða en niðurstaðan varð þó betri eða 139 millljarða halli. Yfirleitt hefur hallinn þó verið meiri en vonir stóðu til. Árið 2010 var hallinn 25 milljarðar umfram áætlun. Árið 2011 munaði rúmum 50 milljörðum og í fyrra munaði fimmtán milljörðum. Í heild hefur hallinn á síðustu þremur árum verið helmingi meiri en áætlanir fjárlaga gerðu ráð fyrir. Hagfræðideild Landsbankans kemst að þeirri niðurstöðu í nýlegri úttekt að lítið sé marka áætlun fjárlaga og þau séu í raun marklítið plagg.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Sjá meira