Innlent

Treyja Arons Pálmarsonar á uppboði

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd af johanneskr.is
Einni milljón króna verður úthlutað úr Minningarsjóði Sigrúnar Mjallar 22. desember, en þann dag hefði Sigrún Mjöll orðið 21. árs. Er þetta í annað sinn sem úthlutað er úr minningarsjóðnum, en í desember 2012 voru fjögur verkefni styrkt um samtals 900 þúsund krónur.

Aron Pálmason, landsliðsmaður í handbolta, styrkti sjóðinn um 450 þúsund krónur á síðasta ári og nú hefur hann ákveðið að styðja við bakið á minningarsjóðnum með að gefa handboltatreyju sem verður boðin upp til styrktar sjóðnum.

Uppboðið mun standa yfir í eina viku og er einstaklingum og fyrirtækjum kleyft að bjóða í treyjuna með því að senda tölvupóst á netfangið uppbod@minningsissu.is. Hægt verður að fylgjast með uppboðinu á þessari Facebook síðu.

Aron mun svo heimsækja meðferðarheimili í byrjun næsta árs og ræða við ungt fólk um handboltaferilinn og hvernig hann hefur sett sér markmið varðandi ferilinn. „Stuðningur Arons er sjóðnum mikilvægur, enda er hann fyrirmynd allrar þjóðarinnar,“ segir Jóhannes Kr. Kristjánsson á heimasíðu sinni.

Minningarsjóður Sigrúnar Mjallar var stofnaður í minningu Sigrúnar Mjallar Jóhannesdóttur sem lést þann 3. júní 2010 af völdum fíkniefna. Sjóðnum er ætlað að styrkja skapandi verkefni ungmenna á aldrinum 12-18 ára sem eru í áfengis- og/eða vímuefnameðferð á meðferðarheimilum á Íslandi.

Ef einhverjir vilja leggja sjóðnum lið þá eru hér að neðan reikningsupplýsingar:

Kennitala: 550113-1120 Reikningsnúmer:  596-26-2




Fleiri fréttir

Sjá meira


×