Gefast upp á sorpbrennslu á Klaustri Garðar Örn Úlfarsson skrifar 13. júní 2013 00:01 Hreinsibúnaður var ófullkominn og magn dioxíns sem barst frá sorpbrennslunni var því of mikið. Þáverandi umhverfisráðherra ræsti ofninn á árinu 2003. Mynd / Vilhelm
Sveitarstjórn Skaftárhrepps segir of dýrt að taka aftur upp brennslu sorps til að kynda sundlaug og grunnskóla er verði því hituð með rafmagni. Sveitarstjóri segir sorpmál í landinu „í algeru rugli“. Sárt sé að að loka brennslunni og aka rusli burt. „Sorpmál almennt á Íslandi eru í tómu rugli,“ segir Eygló Kristjánsdóttir, sveitarstjóri Skaftárhrepps þar sem gefist hefur verið endanlega upp á rekstri sorpbrennslu. Sveitarstjórnin í Skaftárhreppi ákvað í fyrradag að ekkert verði af því að kaupa nýja sorpbrennslu í stað þeirrar sem sveitarfélaginu var gert að loka á Kirkjubæjarklaustri fyrir nákvæmlega hálfu ári. Var það gert vegna of mikillar dioxínmengunar frá brennsluofninunm sem hitaði íþróttahús og sundlaug heimamanna. Laugin var lokuð í sparnaðarskyni í vetur vegna þessa. „Ef við ætlum að uppfylla skilyrðin alveg í þaula þá erum við að tala um hundrað milljónir; fimmtíu milljónir fyrir ofn með hreinsunarbúnaði og aðrar fimmtíu milljónir í mælabúnað. Það er bara of stór biti fyrir okkur,“ segir Eygló. Eygló Kristánsdóttir Sveitarstjórnin ákvað því að kaupa varmadælu fyrir 15 milljónir króna. Sá búnaður á að lækka rafmagnsreikninginn fyrir sundlaugina og grunnskólann um helming frá því sem nú er og spara þessu 443 íbúa sveitarfélagi fimm til sex milljónir á ári. Varmadælan muni þannig borga sig upp á þremur árum. Eygló segir að sorp hafi verið flokkað í Skaftárhreppi frá árinu 1998. „Við höfum talið okkur vera fremst á þessu sviði. Nú verður sorpið einfaldlega keyrt til Reykjavíkur og urðað þar,“ segir hún. „Umhverfisins vegna finnst okkur sárt að loka brennslunni og þurfa að keyra sorpið í burtu. Það er alveg nóg umferð um Suðurland þó við förum ekki að bæta við flutningabílum.“ Að sögn Eyglóar gerir núverandi regluverk meðhöndlun sorps óvinnandi. Ekki sé bjartara framundan. „Árið 2025 á ekki að urða neitt sorp og það má ekki fara í brennslu. Hvað ætlum við að gera þá? Þetta er bara orðin vitleysa,“ segir sveitarstjórinn í Skaftáhreppi vonsvikin með lyktir sorpbrennslumálsins.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Sjá meira