Tómatarækt í Grindavík verði stærri en öll gróðurhús landsins samanlögð Garðar Örn Úlfarsson skrifar 5. október 2013 06:00
Gangi áform hollensks félags eftir rís í Grindavík gróðurhús sem verður stærra en öll gróðurhús landsins samanlögð að sögn bæjarstjórans. Rækta á lífræna tómata sem fluttir verða á markað í Bretlandi. Íbúafundur um málið er kominn á dagskrá. „Þetta er stærra en öll gróðurhús landsins til samans,“ segir Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri Grindavíkur þar sem hollenskt félag falast eftir lóð undir 150 þúsund fermetra gróðurhús til tómataræktar. Að sögn Róberts hafa Hollendingarnir þegar aflað sér viljayfirlýsingar frá kaupanda og tómataræktanda en vantar að ganga frá viljayfirlýsingum við Grindavík og HS Orku. Hann segir fyrirtækið eiga gróðurhús í Þýskalandi og Hollandi og leigja út til ræktenda.Róbert Ragnarsson „Maður veit aldrei hvað gerist en þeir eru með áhugaverða fjárfesta sem bíða. Þeir eru að semja við HS orku um orkuna og við erum með 27 hektara lóð fyrir þá rétt vestan við bæinn,“ segir Róbert. Á sama svæði undirbúi Íslensk matorka eldi á bleikju og fiskinum tilapíu. „Það er ekki síst spennandi að þessir tveir aðilar eru að skoða hvort þeir geti nýtt hrat hvor frá öðrum.“ Tómatarnir verða eingöngu til útflutnings. „Þeir ætla að rækta ýmsar tegundir af tómötum og flytja til Bretlands. Þeir horfa til þess að geta framleitt lífræna tómata án skordýreiturs með endurnýjanlegri orku. Það er verið að keppa við tómata sem eru ræktaðir með eitri í Túnis og á Spáni,“ segir Róbert.Fyrirhugað gróðurhús við Grindavík verður um 150.000 fermetrar að flatarmáli. Þar verða ræktaðir tómatar sem verða svo fluttir út til Bretlands.Mynd/Rósa Jóhannsdóttir Að sögn Róberts hafa menn ýmsar spurningar, meðal annars um ljósmengun og vatnsþörf. „Við höfum miklar áhyggjur af ljósmengun en þeir segjast getað skermað 95 prósent af henni. Þeir þurfa sáralítið af vatn vegna þess að það á að hirða regnvatn af þakinu sem þeir safna saman í laugar og sía,“ segir bæjarstjórinn.Tómatar Áætlað er að tómataræktunin skapi 100 til 120 störf og færa sveitarfélaginu auknar útsvarstekjur og fasteignagjöld. „Ég ímynda mér að þriðjungur starfsmanna búi í Grindavík,“ segir Róbert. Halda á íbúafund um málið 16. október. „Við höfum oft fengið til okkar erlenda aðila og þeir fara jafn hratt og þeir koma en það hefur enginn verið til í að halda íbúafund áður,“ segir bæjarstjórinn.
Mest lesið „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Erlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Erlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Fleiri fréttir Missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum Sjá meira