Úrúgvæ lögleiðir hjónabönd samkynhneigðra Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 15. apríl 2013 14:50 Það var líf og fjör fyrir utan þinghúsið þegar lögin voru samþykkt. Mynd/AP
Úrúgvæ er þriðja Ameríkulandið til að lögleiða hjónabönd samkynhneigðra á eftir Kanada og Argentínu, eftir að meirihluti þingmanna samþykkti ný hjúskaparlög í landinu. Lögin kveða einnig á um það að samkynja pör geti ættleitt börn eða farið í tæknifrjóvgun. Broad Front, stjórnarmeirihluti vinstriflokka, með forsetann José Mujica í fararbroddi, studdi lögin, en þau munu taka gildi innan nokkurra daga. Að vanda mátti finna andstæðinga laganna á íhaldssama vængnum, sem báru þó ekki erindi sem erfiði þar sem 71 þingmaður af 92 kaus með tillögunni. „Þetta er sögulegur viðburður,“ segir Federico Grana, leiðtogi réttindasamtakanna Black Sheep Collective, en hann reiknar með að fyrstu giftingarnar geti farið fram í júlí að lokinni skriffinsku. Einnig var lögum um giftingaraldur breytt, en fram að þessu höfðu tólf ára stúlkur og fjórtán ára drengir getað gengið í hjónaband. Nú verða einstaklingar af báðum kynjum að hafa náð sextán ára aldri.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fleiri fréttir Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Sjá meira