Lyfta biluð í húsi fyrir aldraða yfir jólin Eva Bjarnadóttir skrifar 28. desember 2013 07:00 Sunnuhlíð VÍSIR/ANTON
Lyfta bilaði í íbúðarhúsi fyrir aldraða á aðfangadag og var ekki enn komin í gagnið síðdegis í gær. Húsið er á vegum Sunnuhlíðarsamtakanna í Kópavogi. Umsjónarmaður fasteigna segir að erfitt hafi reynst að finna orsök bilunarinnar. Meirihluti íbúa hússins styðst við göngugrindur eða eru bundnir við hjólastól, að sögn aðstandanda. „Það er ansi bagalegt fyrir fólkið að komast ekki milli hæða yfir jólin. Systir mín mætti fjölskyldu á göngunum sem hafði flutt jólaveisluna á Sunnuhlíð, þar sem ekki var hægt að flytja viðkomandi íbúa niður stigann,“ segir Hjördís Jóhannsdóttir, en móðir hennar býr í húsinu. Dóttir Hjördísar var stödd í lyftunni þegar hún bilaði um fjögurleytið á aðfangadag. Matsalur íbúa er á neðstu hæð hússins. „Móðir mín hefur staulast þetta með herkjum en hjá henni er bara einn stigi. Aðrir búa ofar,“ segir Hjördís, sem er ósátt við það hversu langan tíma hefur tekið að gera við lyftuna. „Ég hef ekki orðið vör við að neinn sinni þessu,“ segir hún. Sæmundur Alfreðsson, umsjónarmaður fasteigna Sunnuhlíðar, segir það hafa tekið viðgerðamenn langan tíma að finna út hvað olli biluninni. Búist var við að lyftan kæmist í gagnið í gær. Sæmundur segir íbúana hafa orðið fyrir nokkrum óþægindum, en reynt hafi verið að komast til móts við þá, meðal annars hafi þeim sem ekki komust í matsalinn verið færður matur.
Mest lesið Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Innlent Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Veður „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Innlent Þrjár líkamsárásir og yfir tuttugu ungmenni í athvarf Innlent Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Fleiri fréttir Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Vestfirðingar fagna í kvöld: „Þetta er bara mjög stórt“ Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Hlaupið aftur í rénun eftir vöxt í nótt Þrjár líkamsárásir og yfir tuttugu ungmenni í athvarf Hver verður Íslandsmeistari í hrútaþukli? Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Akstursíþróttasamfélagið harmi slegið, unglingadrykkja á Menningarnótt og hrútaþukl Evrópusambandið, menntamál, stýrivextir og Gasa í Sprengisandi „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Algjört hrun í fálkastofninum Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Jökulhlaupið í hægum vexti Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Grunur um brot gegn fleiri börnum Grunur um brot gegn öðru barni, alvarlegt slys og tíðindi á Menningarnótt Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Vínsali býst við ákæru, kúnnalisti Epstein og stemming í bænum Reiðhjólabændur með vaktað hjólastæði í Traðarkoti til miðnættis Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Sjá meira