Fjölskyldu bjargað úr brennandi húsi í Berufirði 5. nóvember 2013 12:26 Eldurinn kom upp í sveitarfélaginu Djúpavogi. Mynd/Andrés Skúlason
Betur fór en á horfði í bruna í Berufirði á Austurlandi í nótt. Eldur kviknaði í klæðningu austurgafls íbúðarhúss út frá kamínu. Fjölskylda var í húsinu þegar eldurinn kom upp. Tveir sjómenn sem voru að koma úr róðri frá Breiðdalsvík sáu eldinn og björguðu fimm manna fjölskyldunni úr húsinu. Einnig börðust þeir við eldinn þar til slökkviliðið kom á vettvang. „Við fengum útkall um að húsið væri alelda og það liðu ekki nema um þrjár mínútur þar til fyrsti bíll var kominn á vettvang," segir Kári Snær Valtingojer í slökkviliðinu á Djúpavogi. „Við fórum inn til að kæla og rufum loftið. Það munaði samt litli að eldurinn næði að teygja sig í háalofti," segir Kári Snær slökkviliðsmaður. Talið er að kviknað hafi í út frá kamínu. „Þetta stóð tæpt.“ Sjómennirnir tveir áttu einnig stóran þátt í að ráða niðurlögum eldsins. Samkvæmt lögreglunni á Djúpavogi rifu þeir klæðningu af gafli hússins og púðruðu úr slökkvitæki á eldinn. Það mun hafa gert gæfumuninn. Eigandi hússins segir í samtali við Vísi að betur hafi farið en á horfði og húsið sé minna skemmt en von var á. Húsið mun enn vera íbúðarhæft.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Sjá meira