Óraunhæfar hugmyndir Vigdísar Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 5. nóvember 2013 15:55 Páll Rúnar M. Kristjánsson, lögmaður og Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis. „
Það sem fyrst slær mann við þessar hugmyndir Vigdísar eru skuldbindingar okkar samkvæmt EES samningnum og síðan grundvallar hugmyndir okkar um jafnræði,“ segir Páll Rúnar M. Kristjánsson, lögmaður og einn eigenda Málflutningsstofu Reykjavíkur. Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, sagði í Fréttablaðinu í dag að rétt sé að skoða hvort rukka eigi íslenska námsmenn sem taka námslán til að fjármagna nám erlendis en skila sér ekki heim að námi loknu um markaðsvexti af námslánunum. Misjafnlega hefur verið tekið í þessar hugmyndir Vigdísar í dag. Páll segir að þó að þessar hugmyndir séu frumlegar og skemmtilegar sjái hann ekki fyrir sér hvernig þær gæti gengið upp: „Með þessu væru heftir frjálsir fólksflutningar milli landa á EES svæðinu og hindra fólk við að flytja á milli landa. Slíkt samrýmist tæplega skuldbindingum okkar samkvæmt EES samningnum.“ Páll segist í samtali við Vísi auðvitað ekki vita hvernig löggjafinn myndi útfæra þessar hugmyndir eða nákvæmlega hvernig svona tillögur yrðu rökstuddar. „Ég spyr mig hvort málefnalegar ástæður standi að baki því að láta þessa einstaklinga njóta lakari réttar en annarra í sambærilegri stöðu, þetta samrýmist þannig varla heldur okkar hugmyndum um jafnræði,“ segir Páll. Páll bendir einnig á að þeir námsmenn sem snúa ekki heim að námi loknu vegna tækifæris á hærri launum erlendis greiði sín námslán hraðar niður en þeir sem launalægri eru. „Námsmenn sem greiða tekjutengdar afborgarnir af lánum sínum, þannig eru eðli málsins samkvæmt heimtunar alla jafna meiri hjá LÍN frá þeim sem launahærri eru og þeir aðilar líklegri til að greiða sín lán hraðar til baka en þeir sem hafa lægri tekjur,“ segir Páll. Aðspurður um hvort hann sjái fyrir sér að slíkar hugmyndir væri hægt að útfæra með einhverjum hætti þannig að þær stæðust skuldbindingar okkar samkvæmt EES samningnum segir Páll á léttum nótum: „Það væri kannski hægt ef svona ákvæði væru heimfærð undir landbúnaðarkaflann.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Sjá meira