Heimatilbúnu bomburnar eru hættulegastar Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 30. desember 2013 07:00 Viðar Magnússon, læknir á bráðamóttöku, segir það atriði númer eitt, tvö og þrjú að vera með hlífðargleraugu þegar flugeldum er skotið upp. Mynd/Valli
Flest slys vegna flugelda verða vegna þess að ekki er farið eftir leiðbeiningum um meðhöndlun, hlífðarbúnaður er ekki notaður eða flugeldar eru teknir í sundur og búnar til sprengjur. Viðar Magnússon, læknir á bráðamóttöku Landspítalans, segir alltaf mikinn eril á bráðamóttökunni á gamlárskvöld og á hverju ári verði alvarleg slys sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir með meiri varkárni. „Atriði númer eitt er að verja augun. Það eiga allir að vera með hlífðargleraugu. Annað eru brunaáverkar, það á auðvitað alltaf að fara varlega í kringum eld. Í þriðja lagi á aldrei að halda á flugeldum sem eru ekki til þess ætlaðir.“ Fyrir tæpum fjórum árum lést ungur maður er hann var að búa til rörasprengju og notaði púður úr flugeldum til þess. Viðar segir alvarlegustu slysin verða þegar fiktað er í flugeldunum. „Það má aldrei taka í sundur flugelda og festa saman á ný og búa þannig til nýjar sprengjur. Heimatilbúnu bomburnar eru hættulegastar.“ Viðar segir fyrstu viðbrögð mikilvæg ef slys verða. „Ef flugeldur fer í auga og einhver efni fara í það þá er gott að skola augað strax og fara svo beint á bráðamóttökuna. Ef bruni verður á að kæla strax, til dæmis með köldum bökstrum, og svo koma strax til okkar.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Fleiri fréttir Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Sjá meira