Vilja lausnarfé fyrir gögn tölvunotenda Brjánn Jónasson skrifar 30. desember 2013 06:00 Talið er niður á skjám tölva sem smitast af CryptoLocker og aðgangur að gögnunum útilokaður sé lausnargjald ekki greitt. Fréttablaðið/Valli
Engin staðfest dæmi eru af Íslendingum sem hafa lent í því að tapa öllum gögnum á tölvum sínum í hendur fjárkúgara á netinu, en miklar líkur á að einhverjar íslenskar tölvur séu meðal þeirra 250 þúsund tölva sem hafa sýkst, að mati sérfræðinga. Tölvuóværan CryptoLocker er nýlegt verkfæri tölvuþrjóta sem dulkóðar öll gögn á tölvum sem sýkjast og meinar notendum þeirra aðgang að gögnunum. Notendurnir fá svo skilaboð þar sem þeim er boðið að dulkóðuninni verði aflétt greiði þeir tölvuþrjótunum lausnargjald. Lausnargjaldið er gjarnan á bilinu 100 til 700 evrur, sem jafngildir 16 til 111 þúsund krónum. „Okkur hafa ekki borist neinar fregnir frá Íslendingum sem hafa fengið CryptoLocker inn á tölvuna sína,“ segir Finnbogi Finnbogason, þjónustustjóri hjá Commtouch, framleiðanda vírusvarnarinnar Lykla-Péturs. Dyggir viðskiptavinir vírusvarnarfyrirtækja, líkt og þeir sem nota sér ókeypis vírusvarnir sem fást í gegnum netið, ættu raunar að vera nokkuð öruggir. Séu vírusvarnarforritin uppfærð ættu þau að finna CryptoLocker-óværuna, fjarlægja hana úr viðhengjum tölvupósta og loka af vefsíður sem dreifa henni. Sérfræðingar í vírusvörnum sem Fréttablaðið ræddi við segja ólíklegt að Íslendingar hafi sloppið við þessa óværu, þó ekki hafi fréttst af henni. Einhverjir kunni að hafa tekið skellinn og tapað gögnunum, en aðrir borgað lausnargjaldið. CryptoLocker-óværan er þróaðra afbrigði af netóværum sem ætlað er að kúga fé út úr fólki, sem hafa verið í gangi árum saman. Flestar hafa átt það sameiginlegt að blekkja notendur til að halda að eitthvað slæmt kynni að gerast borguðu þeir ekki lausnargjaldið. CryptoLocker gengur að því leyti skrefinu lengra, því óværan dulkóðar í raun öll gögn á tölvunni. Eina leiðin til að nálgast gögnin eftir að óværan hefur dulkóðað þau er að fá lykil frá tölvuþrjótunum, án hans glatast gögnin að eilífu. Niðurteljari birtist á tölvuskjánum og því hótað að sé ekki greitt áður en tíminn renni út verði eina lyklinum að dulkóðuðu gögnunum eytt. Sérfræðingar segja alls óvíst að lykillinn komi um hæl þó lausnargjaldið sé greitt, og vara tölvueigendur við að láta undan fjárkúgunum af þessu tagi. Þeir sem lenda í CryptoLocker-óværunni og ætla að borga lausnargjaldið geta greitt tölvuþrjótunum með bitcoin, mynt sem aðeins er til á netinu. Nær ómögulegt er að rekja greiðslur með myntinni.Varnir og fyrirbyggjandi aðgerðirHægt er að verjast því að óværur á borð við CryptoLocker eyði gögnum á tölvum með því að vera með góða og uppfærða vírusvörn. Hægt er að kaupa ýmsar tegundir vírusvarna, eða treysta á ókeypis varnir sem finna má á netinu, til dæmis Avast.Varnir duga þó ekki alltaf, og mikilvægt er að taka reglulega afrit af öllum gögnum á tölvunni. Best er að taka afrit á utanáliggjandi harðan disk. Afrita ætti að reglulega, og gæta þess að hafa ekki harða diskinn í sambandi við tölvuna eftir að afritun lýkur. Þeir sem vilja vera alveg öruggir um að gögn tapist ekki heldur í innbroti eða bruna geta svo geymt harða diskinn utan heimilisins, til dæmis í bankahólfi eða hjá vini.Finna má fleiri góð ráð á vef Póst- og fjarskiptastofnunar, netoryggi.is.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira