„Enginn í fjölskyldunni hefur séð aðra eins einkunn“ Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar 20. nóvember 2013 18:30 Guðjón Steinn Skúlason skoraði hátt á samræmdu prófunum.
Nemendur í Reykjanesbæ stóðu sig vel í samræmdum prófum sem þau tóku í haust og segir ungur nemandi í Myllubakkaskóla engan í sinni fjölskyldu hafa séð aðra eins einkunn og hann fékk út úr prófunum. Hann sló því fjölskyldumet. Samræmdu prófn voru lögð fyrir 4., 7. og 10. bekk og stóðu nemendur í Myllubakkaskóla sig með glans. Má í því samhengi nefna að fjórðu bekkingar náðu 8,7 í meðaltalseinkunn í stærðfræði á meðan landsmeðaltalið var 6,8. Eðvarð Þór Eðvarðsson skólastjóri segir mikla áherslu lagða á gott samstarf við foreldra. „Ef okkur tekst að festa foreldrasamstarfið algjörlega í sessi, með þetta starfslið og þessa frábæru nemendur, þá náum við að halda stöðugleika í útkomum og öðru sem snýr að velferð barnanna“, segir hann. Þeir nemendur sem fréttastofa ræddi við í morgun sögðu það gaman að taka próf og að þeim hafi gengið vel. Hinn 9 ára gamli Guðjón Steinn Skúlason líkti próftöku við bikarmót í fótbolta þar sem að stressið sem leggst á hann hjálpar honum við að gera eins vel og hann getur. „Ég væri alveg til í að taka prófin aftur. Bara svona spóla aftur í tímann. Með DVD fjarstýringu, fattarðu?“ sagði hann og hló. Guðjón er sáttur við útkomuna úr prófunum og segir engan í sinni fjölskyldu hafa séð annan eins árangur. „Fjölskyldan mín hefur aldrei þekkt neinn sem hefur fengið svona góða einkunn í samræmdum prófum, eða bara í neinu prófi sko“, sagði Guðjón stoltur í bragði.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Sjá meira