Óskýr og ótrygg fjármögnun skuldaaðgerða Höskuldur Kári Schram skrifar 19. desember 2013 14:29 Guðmundur Steingrímsson formaður Bjartrar framtíðar og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.
Guðmundur Steingrímsson formaður Bjartrar framtíðar segir að fjármögnun skuldaaðgerða ríkisstjórnarinnar sé bæði óskýr og ótrygg. Ríkisstjórnin ætlar fjármagna skuldaaðgerðirnar meðal annars með sérstökum skatti á fjármálafyrirtæki og þrotabú gömlu bankanna. Skatturinn á í því samhengi að skila 20 milljörðum á ári næstu fjögur árin. Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, tók málið upp á Alþingi og vísaði til þess að í greinargerð með fjárlagafrumvarpinu kemur fram að gert sé ráð fyrir því að slitameðferð gömlu bankanna verði að fullu lokið árið 2015 eða eftir tvö ár. Guðmundur spurði fjármálaráðherra hvernig ríkisstjórnin hyggst fjármagna skuldaaðgerðirnar þegar þessi skattstofn verður ekki lengur fyrir hendi. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði að væri óvissu háð hversu lengi þessi skattstofn muni lifa. „Í því frumvarpi sem kynnt var hér í haust þá er þess getið í greinargerð að í því máli sé gengið út frá því að skattstofninn sé a.m.k. til tveggja ára. En það er hins vegar ómögulegt að festa hendur á einhverri ákveðinni tímalengd í þessu efni. Það sem ég horfi hins vegar til er það að eins og sakir standa þá er augljóst að það mun þurfa töluvert miklar afskriftir af íslenskum eignum innan þrotabúanna til þess að við getum komist í afnám haftanna. Þess vegna leyfi ég mér að segja að jafnvel þótt þessi skattstofn myndi á komandi árum hverfa, þ.e. það myndi annað hvort ljúka uppgjöri fjármálafyrirtækja í slitum með nauðasamningi eða með gjaldþroti eða öðrum hætti þá mun verða til með einhverjum öðrum hætti skattstofn fyrir ríkið sem a.m.k. mun jafngilda því sem bankaskatturinn stendur undir,“ sagði Bjarni. Guðmundur sagði ljóst að fjármögnunin væri ótrygg miðað við svar ráðherra. "Þetta svar hljómaði í mínum eyrum dálítið eins og séríslenska viðkvæðið "þetta reddast". Þetta reddast bara einhvern veginn með geislum eða á internetinu [...] og stærstu tíðindin í þessu svari hæstvirts fjármálaráðherra er að fjármögnunin á öllum þessum pakka er í meira lagi óskýr og ótrygg,“ sagði Guðmundur. Bjarni sagði mikilvægt að hafa í huga að bankaskatturinn sé ekki eingöngu lagður á fjármálafyrirtæki í slitum. „Ég tek eftir því að háttvirtur þingmaður hefur áhyggjur af því að það kynni að fara svo á komandi árum að slitum fjármálafyrirtækja myndi ljúka og þar með myndu þau hverfa sem greiðendur þessa skattstofns. En ég bendi á að við slík slit þá mun fyrst og fremst reyna á útgreiðslu af eignum þrotabúanna og í tengslum við afnám gjaldeyrishaftanna mun líka reyna á leiðir til þess að létta snjóhengjuna vegna aflandskróna. Í því samhengi hafa verið viðraðar ýmsar hugmyndir sem geta á endanum skilað ríkinu skatttekjum eins og t.d. sérstakur útgönguskattur. Þannig að við höfum tímann fyrir framan okkur til þess að taka á þeirri stöðu sem kann að þróast í þessum efnum en eitt er alveg skýrt í mínum huga það er ekki ástæða til að hafa áhyggjur af því að ríkið muni verða af tekjum í þeirri þróun,“ sagði Bjarni.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira