Ráðuneyti eru sögð brjóta landslög við nefndaskipan Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 25. september 2013 08:00 Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu.Fréttablaðið/Valli
Af þeim 148 nefndum, ráðum og stjórnum sem skipað var í á vegum ráðuneyta í fyrra voru 48 sem ekki var skipað í í samræmi við kynjakvóta sem kveðið er á um í lögum frá 2008. Í þeim er gert ráð fyrir að hlutur hvors kyns um sig skuli ekki vera minni en 40 prósent nema hlutlægar ástæður heimili annað. Jafnréttisstofa, sem haft hefur eftirlit með framkvæmd kynjakvótans, hefur verið í sambandi við öll ráðuneytin og óskað eftir því að þau skýri þær ástæður sem tilnefningaraðilar hafa gefið ef ekki voru tilnefnd bæði karl og kona. „Við höfum fengið skýringar sem yfirleitt eru fullnægjandi en ef þær eru ekki í samræmi við undanþáguheimildina bendum við á að verið sé að brjóta lög,“ segir Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu. Hún tekur það fram að staðan sé að mörgu leyti ásættanleg. „Þegar litið er til heildarfjölda nefnda er það hins vegar athyglisvert að það skuli vera hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og innanríkisráðuneyti sem hlutfall kvenna er lægst eða 39 prósent. Ýmsar nefndir hafa að vísu verið óbreyttar um árabil og það er ekki fyrr en kemur að endurnýjun sem tekst að leiðrétta kynjahallann og uppfylla lagaskyldur. Þess vegna er mikilvægt að skoða sérstaklega nýskipanir á hverju starfsári fyrir sig.“ Kristín segir að tilnefningaraðilar þurfi að vera með opin augu og líta í kringum sig. „Þeir þurfa jafnframt að leita ráða.“ Jafnréttisstofa hefur tekið til greina þætti eins og reynslu og sérþekkingu starfsfólks auk verkaskiptingar á vinnustöðum og fleira við mat á undanþágum, að því er Kristín greinir frá. „Við teljum hins vegar ekki rétt að nýta undanþáguheimildina ef engar skýringar á nýtingu hennar koma frá viðkomandi ráðuneyti.“ Velferðarráðuneytið var með jafnasta þátttöku kynjanna í nefndum á sínum vegum og einnig eina ráðuneytið með fleiri konur en karla í sínum nefndum, það er 52 prósent á móti 48 prósentum. Sex ráðuneyti af átta eru með hlutfall kynjanna innan viðmiðunarmarka.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið í útkalli á Hringbraut Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Sjá meira