"Þetta er að gera út af við mig“ Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar 25. september 2013 18:30
Rúmlegur sjötugur karlmaður hefur ekki efni á að láta rannsaka hvað veldur sífelldum verkjum í baki og höfði. Hann segir að verkirinir séu að gera út af við sig. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er sá hópur sem þarf að neita sér um læknisþjónustu vegna kostnaðar sífellt að stækka. Eins og kom fram í fréttum okkar í gærkvöldi þurftu 6,8% Íslendinga í lágtekjuhópi að neita sér um það árið 2011. Fréttastofa hefur í dag rætt við fólk sem hefur verið í þessum sporum og svo virðist sem margir eigi ekki einu sinni kost á að fara í viðtal hjá lækni, vegna fjárskorts. Þar á meðal er þrítug, einstæð tveggja barna móðir, sem hefur ekki getað látið endurnýja lyfseðil fyrir þunglyndislyfjum sínum í rúmt ár, þar sem að hún lætur astmalyf fyrir barnið sitt ganga fyrir. Þau áhrif sem lyfjaleysið hefur á daglegt líf hennar eru að hún hirðir ekki sem skyldi um sjálfa sig né heimili sitt, þar sem að börnin hennar fá alla þá orku sem hún á. Hún er langt frá því sú eina en rúmlega sjötugur karlmaður sem þjáist af bakverk og höfuðverk á hverjum degi, getur ekki leyft sér að láta rannsaka hvað veldur verkjunum. „Þetta er alla daga, kvölds og morgna. Líka á nóttunni og ég vakna við þetta,“ segir hann. Bakverkjunum lýsir hann þannig að það sé eins verið sé að taka hrygginn úr honum.Til að komast í gegnum daginn og til að sofa á nóttunni þarf maðurinn að taka inn verkjalyf oft á dag. Hann segir þetta taka mikið á sig tilfinningalega og að taugakerfið sé búið á því. Ef eitthvað kæmi fyrir manninn í dag segist hann ekki hafa efni á því að leggjast inn á spítala og að miklar áhyggjur hafi legið á honum vegna þessa. Hefði hann efni á væri hann farinn til læknis til að komast að því hvað amar að. „Því þetta er að gera út af við mig,“ segir hann.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Sjá meira