Golfklúbbur vill styrki í 633 milljóna hús Garðar Örn Úlfarsson skrifar 9. nóvember 2013 07:00 Klúbbhús GKG var áður söluskáli á Selfossi og dugir ekki lengur. Fréttablaðið/GVA „
Núverandi klúbbhús sem upphaflega var söluskáli á Selfossi er löngu sprungið,“ segir í bréfi Golklúbbs Kópavogs og Garðabæjar til sveitarfélaganna þar sem leita er eftir fjárstyrkjum til að hefja hönnum nýs klúbbhúss. Ætlun GKG er að byggja 1.188 fermetra hús. Áætlaður kostnaður er 633 milljónir króna. Óskað er eftir því í byrjun að Kópavogur og Garðabær leggi fram fjórar milljónir hvort sveitarfélag til að hefja hönnun og undirbúning hússins. Félagið sjálft að leggja fram tvær milljónir. Þá er óskað eftir langtímasamningi um fjármögnun heildarverksins sem hefja eigi á næsta ári, á tutttugu ára afmæli klúbbsins.Innandyra í húsi GKG er snyrtilegt á yfirborðinu en undir niðri leynist fúi og sveppir í signu gólfinu. Fréttablaðið/GVAFram kemur að GKG er annar stærsti golfklúbbur landsins með fjölmennara barna- og unglingastarf en önnur félög. Um eitt þúsund ungmenni stundi golfíþróttina með einum eða öðrum hætti hjá GKG. Þá segir að völlurinn sé samkeppnishæfur en önnur aðstaða ekki. Gólfið í klúbbhúsinu í Leirdal sé sigið, það sé fúið og sveppir teknir að myndast. „Þannig að nú brennur á að taka ákvörðun,“ segir klúbburinn. „Mikilvægt er að átta sig á því að klúbbhús er ekki bara veitingasala. Í klúbbhús þarf að vera búningsaðstaða, aðstaða fyrir barna- og unglingastarf, kennslu- og fyrirlestraraðstaða, geymsluaðstaða fyrir golfsett og síðast enn ekki síst, þá er klúbbhúsið starfsvettvangur þeirra sem vinna að málefnum klúbbsins," segir í bréfi GKG.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira