Mikil aukning í íþróttaiðkun hjá stelpum 7. nóvember 2013 16:25 Starfsfólk Rannsókna og greiningar, þau Hrefna Pálsdóttir, Margrét Lilja Guðmundsdóttir, Inga Dóra Sigfúsdóttir, Ingibjörg Eva Þórisdóttir og Jón Sigfússon.
Mikil aukning hefur orðið á íþróttaiðkun meðal stelpna. Þetta kemur fram í niðurstöðum úr æskulýðsrannsókninni „Ungt fólk 2013“ en rannsóknin er gerð í 5., 6. og 7. bekk í grunnskóla landsins. Jafnframt kemur fram að samverustundir með foreldrum eru miklar og aukast. Könnun var lögð fyrir nemendur í öllum grunnskólum landsins í febrúar 2013, um líðan, menntun, menningu, tómstundir, íþróttaiðkun og framtíðarsýn. Rannsóknir og greining ehf. gerði rannsóknina fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið. Í niðurstöðunum kemur fram að nokkuð hátt hlutfall nemenda í 5.-7. bekk segist eiga erfitt með að sofa eða sofna, hefur litla matarlyst og hefur fundið fyrir höfuðverk og magaverk. Þetta má telja athyglisvert, einkum þar sem um er að ræða ung börn að árum. Mikil aukning hefur orðið frá árinu 2007 á íþróttaiðkun (4x í viku eða oftar) og þá sérstaklega meðal stelpna. Nemendur sem æfa íþróttir með íþróttafélagi eru síður líklegir til að upplifa sig einmana. Um 17% nemenda sem segjast aldrei æfa íþróttir sögðust stundum eða oft finna fyrir einmanaleika á meðan hlutfallið er 7% meðal nemenda sem æfa fjórum sinnum í viku eða oftar.Samverustundir með foreldrum aukast Samverustundir með foreldrum eru miklar og aukast. Yfir 90% nemenda segjast stundum eða oft vera með foreldrum sínum um helgar og yfir 70% nemenda segjast stundum eða oft vera með foreldrum sínum eftir skóla. Fleiri nemendur segjast stundum eða oft vera einir heima eftir skóla (ekki með fjölskyldu) en árið 2011, eða um 47% nemenda. Um 6-9% nemenda segja að þeir eigi enga eða fáa vini. Um 12 - 17% nemenda í 5., 6. og 7. bekk segja það eiga mjög eða frekar illa við um þau að foreldrar þeirra þekki foreldra vina eða vinkvenna þeirra. Þá segja um 8,5% (145) stráka í 5.bekk og um 5,8% stelpna (101) að þeim sé stundum eða oft strítt í frímínútum á skólalóðinni. Þá segja um 5 - 7% nemenda þeim líði frekar eða mjög illa í frímínútum sem eru svipaðar niðurstöður og fengust árið 2011. Fleiri strákar en stelpur telja að námið sé oft eða alltaf erfitt. Þá telja líka fleiri strákar en stelpur að námið sé of létt. Um 6 - 9% nemenda í 5., 6. og 7. bekk segja að þeim líði oft eða alltaf iilla í kennslustundum, sem eru eilítið færri en árið 2011.
Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Innlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar Innlent Fleiri fréttir Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum „Kannski var þetta prakkarastrik“ Sjá meira