Flokkspólitísk heift Láru Hönnu Jakob Bjarnar skrifar 29. október 2013 08:43 Björn Bjarnason segir viðbrögð Skarphéðins Guðmundssonar dagskrárstjóra dapurleg. Anton Brink
Björn Bjarnason, fyrrverandi menntamálaráðherra, segir að heift Láru Hönnu Einarsdóttur, bloggara og varaformanns í stjórn RÚV ohf, í garð Gísla Marteins Baldurssonar einkennist „að sjálfsögðu“ af flokkspólitík. Björn ritar harðorðan pistil á vef Evrópuvaktarinnar í kjölfar fréttar Vísis af viðbrögðum Skarphéðins Guðmundssonar dagskrárstjóra innlendrar dagskrárgerðar RÚV ofh, við myndbandi Láru Hönnu; því sem hún setti inn á YouTube en þar er nýr sjónvarpsþáttur Gísla Marteins harðlega gagnrýndur og reyndar dreginn sundur og saman í háði. Birni líkar það rétt mátulega. „... tilgangurinn er einfaldlega að skemma sem mest fyrir Gísla Marteini af pólitískum ástæðum.“ En, þrátt fyrir þetta finnst Birni viðbrögð Skarphéðins, sem sagði að velta megi fyrir sér því hvað sé við hæfi af stjórnarmönnum að setja fram opinberlega um einstaka dagskrárliði, dapurleg. „Það er greinilega litið þannig á stjórnarmenn ríkisútvarpsins innan veggja þess að þeir séu hluti af hópnum í Efstaleiti en ekki fulltrúar almennings með sjálfstæða, gagnrýna rödd. Verði frumhlaup Láru Hönnu til að virkja stjórnarmenn ríkisútvarpsins í opinberum umræðum um dagskrá þess og efnistök ber að taka því fagnandi þótt efnistökum hennar sé mótmælt sem óvinsamlegum og hlutdrægum,“ skrifar Björn Bjarnason.Björn Bjarnason telur heift Láru Hönnu í garð Gísla Marteins af flokkspólitískum rótum sprottin.Lára Hanna tekur pistil Björns til umfjöllunar á Facebooksíðu sinni og veit ekki í hvorn fótinn hún á að stíga: „Honum finnst frábært að varamaður í stjórn Ríkisútvarpsins tali opinberlega um dagskrá og efnistök miðilsins – en það má bara alls ekki gagnrýna hans menn.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Sjá meira