"Guð forði okkur frá því að fá berkla sem engin lyf vinna á" Hrund Þórsdóttir skrifar 29. október 2013 18:36
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin varar nú við því að fjölónæmir berklar, sem eru ónæmir fyrir hefðbundnum berklalyfjum, gætu orðið alvarlegur faraldur víða um heim.Hvernig á maður að taka svona fréttum hér á Íslandi? "Maður á að taka þeim mjög alvarlega og huga að þessu vandamáli, og það gerum við með því að fylgjast með fólki sem er að flytjast til landsins,“ segir Haraldur Briem, sóttvarnalæknir. Á árunum 1991 til 1997 kom upp eitt tilfelli fjölónæmra berkla hér á landi. Næstu sex ár komu engin upp en næstu sex ár eftir það voru þau þrjú af 62 tilfellum, eða 4,8%. Þetta þótti vísbending um að tilfellum fjölónæmra berkla væri að fjölga hér á landi líkt og annars staðar. Síðan hafa komið upp tvö tilfelli hérlendis. „Fjölónæmir berklar eru miklu vandmeðfarnari, meðferðarúrræðin eru miklu færri og dýrari þannig að þetta verður erfitt ef það verður fjölgun á slíkum tilfellum. Og guð forði okkur frá því að fá berkla sem engin lyf vinna á,“ segir Haraldur. Samkvæmt grein í Læknablaðinu frá árinu 2009 er líklegt að tilfellum fjölónæmra berkla muni fjölga hérlendis í ljósi aukinna fólksflutninga og vaxandi lyfjaónæmis og tekur Haraldur undir það. Kostnaður við hvert tilfelli er gríðarlegur, lítum á íslenskt dæmi: Kostnaður við lyfjameðferð sjúklings í sjúkrahúslegu var um 750.000 kr á mánuði í tæpa sjö mánuði og eftir útskrift um 230.000 á mánuði í 15 mánuði, alls um 9 milljónir (á verðlagi maímánaðar 2008). Ofan á þetta leggst legudagakostnaður á lyflækningasviði Landspítalans, tæpar 11 milljónir á sjö mánuðum. Samtals eru þetta 20 milljónir króna. Haraldur segir skipulag berklavarna ágætt hér en vegna frjáls flæðis fólks innan EES hefur reynst erfitt að beita komuskimun. Spurður um hvort eðlilegt sé að pólitík hafi áhrif á forvarnastarf gegn smitsjúkdómum segir hann: „Ja sko, berklabakterían og aðrar bakteríur, þær virða enga samninga.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira