Björn Daníel Sverrisson, miðjumaður FH, átti enn einn góðan leikinn í kvöld þegar FH-ingar unnu 2-1 sigur á Fram og minnkaði forskot KR á toppi Pepsi-deildarinnar í tvö stig.
Björn Daníel gerði tilkall til fyrra marksins en það verður skráð sem sjálfsmark Framarans Halldórs Arnarssonar. Skalli Björns var ekki að stefna í markið þegar boltinn fór í Halldór og þaðan inn í markið.
„Ég ætlaði að eigna mér markið en ég fattaði strax að það gengi ekkert. Ég skallaði í einhverja tvo þarna og þaðan inn svo mér er eiginlega alveg sama, liðið gengur fyrir. Ég hefði auðvitað viljað fá markið á Ólafsvík skráð á mig en við erum búnir að vinna báða leikina og það er það sem skiptir máli í þessu," sagði Björn Daníel Sverrisson, við Kristinn Pál Teitsson, blaðamann Vísis eftir leikinn.
Þetta er annað markið sem Björn Daníel "missir" því mark hans á Ólafsvík var einnig skráð sem sjálfsmark. Dómari þess leiks, Örvar Sær Gíslason, mat það sem svo að skot hans væri ekki á leiðinni í markið þegar boltinn fór í Ólafsvíkinginn Abdel-Farid Zato-Arouna.
Björn Daníel Sverrisson hefur skorað 3 mörk í 10 leikjum í Pepsi-deildinni í sumar en fær skráðar stoðsendingar í umræddum tveimur mörkum.
Björn Daníel: Fattaði strax að það gengi ekkert
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið

Sex leikmenn Íslands í lyfjapróf
Fótbolti




Sjáðu tvennur Eiðs og Nikolaj, aukaspyrnu Kjartans og öll hin mörkin
Íslenski boltinn


„Ég hef aldrei séð aðrar eins tölur“
Fótbolti



Stúkan: Átti annað mark ÍA að standa og hver skoraði?
Íslenski boltinn