Gunnar Birgisson sló Ómar í bringuna Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 15. nóvember 2013 12:15 Ómar segir að Gunnar hafi verið stórhuga og oft reynt að finna leiðir að sínum markmiðum framhjá fólki. Stundum hafi komið til átaka. mynd/365 „
Það gat oft verið mjög stormasamt,“ segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi og oddviti framsóknarmanna í Kópavogi um samstarf sitt við Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóra. Í viðtali við Kópavogsfréttir gerir Ómar meðal annars upp feril sinn sem stjórnmálamaður og samstarfið í bæjarstjórninni. Ómar segir að Gunnar hafi verið stórhuga og oft reynt að finna leiðir að sínum markmiðum framhjá fólki. Stundum hafi komið til átaka. Ómar rifjar upp eitt atvik þegar rætt hafi verið um að bjóða út gerð ársskýrslu bæjarins. Ómar vildi að verkefnið yrði boðið úr en Gunnar varð svo reiður að hann strunsaði út úr fundaherberginu með þeim orðum að Ómar væri á móti „sér og sinni fjölskyldu“. Ómar elti Gunnar fram og svaraði honum fullum hálsi en þá sló Gunnar hann fast í bringuna. Ómar segir að sér hafi krossbrugðið við þetta og orðið mjög reiður. Gunnar skellti hurðinni að skrifstofu sinni beint á nefið á Ómari þegar Ómar ætlaði að elta hann áfram. Það sauð á mér þarna og munaði litlu að ég rifi upp hurðina inn á skrifstofu hans og færi bara almennilega í kallinn. Mig langaði í eitt sinn að berja Gunnar Birgisson,“ segir Ómar. Ómar segir að sér hafi sem betur fer runnið reiðin og tekur fram að það vinni aldrei neinn í svona aðstæðum. Málinu hafi þó lokið á því að verkefnið var boðið út. „Svona gat þetta verið,“ segir Ómar.Ætlar að athuga hvort hann eigi einhverja vini ennþáÓmar gekk í framsóknarflokkinn árið 1986 þegar hann var nýútskrifaður úr Bændaskólanum. Hann segir ekkert annað hafa komið til greina. Þremur árum síðar settist hann í stjórn ungra framsóknarmanna í Kópavogi og tók sjötta sæti á lista flokksins árið 1990. Árið 1998 varð hann varabæjarfulltrúi og hefur verið viðriðinn sveitarstjórnarmál síðan. Eins og fram hefur komið á Vísi ætlar Ómar nú að taka sér frí frá stjórnmálum. Þar sagði að Ómar stefni á að koma tvíefldur til baka í kosningarnar árið 2018. Hann segir að það sé fyrst og fremst út af fjölskyldunni sem hann tekur fríið. Hann eigi þrjú börn á skólaaldri sem hann langi að fylgjast betur með. Einnig ætlar hann að athuga hvort hann eigi einhverja vini ennþá. Segir Ómar að þegar hann komi til baka ætli hann að vera eins lengi í stjórnmálum og hann mögulega geti. „Ég ætla ekkert að þekkja minn vitjunartíma,“ segir Ómar og hlær.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira