Líkamsárás vísað frá dómi vegna óskýrleika í kæru Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 15. nóvember 2013 13:23 Lögreglan bætti úr óskýrleikanum í skýrslutöku en þá var það orðið of seint.
Maður var í gær sýknaður af Hæstarétti fyrir líkamsárás gegn konu sem sakaði hann um að hafa ruðst heimildarlaust inn í íbúð konunnar, ýtt við henni og rifið utan af henni nærbuxur með þeim afleiðingum að hún hlaut rispu á mjöðm. Þá henti hann farsíma og örbylgju ofni í gólf íbúðarinnar. Hann var einnig ákærður fyrir líkamsárás gegn öðrum manni sama dag í sama húsi. Var hann ákærður fyrir að hafa veist að manninum þannig að hann féll aftur fyrir sig og skall með höfuðið í ofn og hlaut við það sár á hvirfli. Í dómi Hæstaréttar er vísað til þess að þótt að konan hafi borið fram kæru á hendur þeim ákærða hjá lögreglu fyrir húsbrot og eignarspjöll hafi ekki komið þar fram við skýrslutöku af konunni hjá lögreglu hvort hún krefðist þess að sakamál yrði höfðað á hendur honum. Þegar loksins var bætt úr því ellefu mánuðum síðar við aðra skýrslutöku, að fá fullnægjandi kröfu konunnar fyrir því að það væri hennar vilji að sakamál yrði höfðað á hendur manninum, var lögbundninn sex mánaða málshöfðunarfrestur liðinn. Var því ákærunni vegna eignarspjalla og húsbrots mannsins vísað frá dómi. Maðurinn var einnig sýknaður vegna beggja líkamsárásanna. Í árásinni á hendur konunni segir í dómi héraðsdóms, sem Hæstiréttur staðfesti, að áverki hennar sé óverulegur og þess eðlis að ekki sé útilokað að hann hafi myndast fyrir tilstilli hennar sjálfrar. Þá beri verulega á milli framburðar konunnar og ákærða sem voru ein í íbúðinni. Maðurinn var einnig sýknaður af ákæru vegna síðari líkamsárásinni en í dómnum segir að fyrir liggi að nokkurt jafnræði hafi verið á milli ákærða og brotaþola hvað líkamsburði varðar. Þá hafi komið til ryskinga milli þeirra en þeim beri ekki saman um hvernig það atvikaðist að þeir féllu í gólfið og hver hafi verið þáttur hvors um sig í þeim átökum.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira