Raunveruleg jólastjarna á himni í desember Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 15. nóvember 2013 20:00
Von er á stórkostlegu sjónarspili á himni í desember þegar ævaforn halastjarna heiðrar jarðarbúa með nærveru sinni. Vísindamenn og stjörnuáhugamenn vítt og breitt um heiminn fylgjast nú með halastjörnunni er hún æðir framhjá sólinni. Halastjarnan ISON, sem er um fimm kílómetrar að þvermáli, á rætur að rekja til árdaga sólkerfisins og hefur síðustu 4.5 milljarða ára svifið gaddfreðið í ystu afkimum sólkerfisins. Halastjarnan sést þegar á næturhimni í meyjarmerkinu. Venjulegan handsjónauka þarf til að sjá ISON en hún er þó ekki eins björt og menn vonuðu um þessar mundir. ISON er að ljúka fyrri atrennu sinni um sólkerfið og nálgast sólina á 185 þúsund kílómetra hraða á klukkustund. Hér tekur við tímabil sólnándar þar sem ISON verður fyrir barðinu á gríðarlegum hita sólarinnar og sterkum útfjólubláum geislum. Um leið myndast hinn mikli hali sem einkennir halastjörnur. Svo gæti farið að ISON þurrkist að mestu út við sólnánd. Ef ekki, þá eigum við jarðarbúar von á stórkostlegu sjónarspili í desember. „Himinninn gæti orðið afskaplega fallegur í desember með tilkomu þessarar jólastjörnu,“ segir Sævar Helgi Bragason, hjá Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness. „ISON gæti orðið björt í nokkra daga en svo fjarar hún út. En það gæti verið að tignarlegur hali sjáist á himni.“ Ef allt fer að óskum og ISON kemst að mestu ósködduð frá sólu þá munum við, snemma í desember, sjá halastjörnuna í austri að morgni og þá neðarlega á himni. Halastjarnan mun einnig sjást að kveldi og þá líka neðarlega í vestri. „Hún verður björtust snemma í desember. Skömmu eftir að hún ferðast framhjá sólinni. Þá er uppgufunin hvað mest. Við náttúrulega vonum það besta. Þetta gæti orðið mjög falleg jólagjöf fyrir okkur stjörnuáhugamenn,“ segir Sævar Helgi.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira