Blóðgjafar þurfa frí frá vinnu til að gefa Jórunn Frímannsdóttir og deildarstjóri blóðsöfnunar skrifa 8. mars 2013 06:00 Samtök atvinnulífsins ákváðu að leggja Blóðbankanum lið með vakningarátaki um mikilvægi þess að gefa blóð og geta fengið að skreppa frá vinnu til þess. Auglýsingar átaksins ganga út á að höfða til atvinnurekenda með því að birta myndir af forstjórum að gefa blóð með textanum „Brettum upp ermar – gefum blóð". Með þessu eru þeir ekki síst að leggja okkur lið með því að höfða til atvinnurekenda í því tilliti að blóðgjafar þurfa frí til þess að geta gefið blóð. Blóðgjafar nýta oft hádegishlé sitt til að koma að gefa blóð og draga þannig úr fjarveru frá vinnu. Þess vegna er oft mikið álag í hádeginu og biðtími blóðgjafa verður óviðunandi langur. Það er hins vegar ekki viðunandi fyrir blóðgjafa að þurfa að bíða lengi eftir því að komast að og í raun tapa allir á því. Einstaklingurinn er mun lengur frá vinnu en hann annars þyrfti að vera og blóðgjöfin verður stress en ekki afslöppun eins og hún á að vera.Bókaðir tímar í blóðgjöf Til þess að reyna að mæta þessu og ná betra jafnvægi í biðtíma, innkomu blóðgjafa, lagerhaldi og mönnun höfum við hjá Blóðbankanum ákveðið að taka upp bókanir blóðgjafa í miklu meira mæli. Til að byrja með mun blóðgjafinn geta valið um hvort hann bókar sig í blóðgjöf, en blóðgjafar sem eiga bókaðan tíma munu ganga fyrir öðrum. Stefna okkar er hins vegar sú að fara að mestu leyti yfir í að bóka tíma. Í nágrannalöndum okkar hafa blóðgjafar bókað sér tíma í blóðgjöf til nokkurra ára. Með nýju tölvukerfi getum við haldið utan um bókanir og sent blóðgjöfum áminningu daginn áður en hann á að mæta. Með þessu móti mun blóðgjafi geta gert ráð fyrir því að þurfa ekki að bíða lengi eftir viðtali og blóðgjöfinni sjálfri sem tekur um 10 mínútur og svo er auðvitað nauðsynlegt að gefa sér aðeins tíma á kaffistofunni okkar eftir blóðgjöfina og fá sér eitthvað gott að borða, lesa blöðin, hlusta á útvarpið og spjalla við aðra blóðgjafa. Þannig á heimsóknin til okkar ekki að þurfa að taka meira en 30-40 mínútur og allt á að geta verið afslappað og þægilegt. Bókaðu tíma með því að senda okkur póst á www.blodbankinn.is eða hringdu í okkur í síma 543-5500. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir Skoðun Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir Skoðun Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman Skoðun Stöðugleiki eða sveigjanleiki Sigurjón Njarðarson Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland vísar veginn í beinni nýtingu jarðhita Nótt Thorberg skrifar Skoðun Gjafakvótakerfið sem ráðherra Viðreisnar vill ekki kannast við Jón Kaldal skrifar Skoðun Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Stöðugleiki eða sveigjanleiki Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Heilbrigðiseftirlit á heima í nærumhverfinu Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ábyrgð í útlendingamálum – breytingar og árangur Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldisstofnanir ríkisins ráðast á Ljósmyndara Kristján Logason skrifar Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason skrifar Skoðun Óalandi og óferjandi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar Skoðun Brjóstsviði á sumrin – þegar meltingin fer í sumarfrí Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Var samninganefndin að vinna eftir umboði Alþingis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hræsni siðferðisriddara Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“ Anna María Björnsdóttir skrifar Skoðun Er drónaskapur dónaskapur? Björn Steinbekk skrifar Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra Jónas B. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Samtök atvinnulífsins ákváðu að leggja Blóðbankanum lið með vakningarátaki um mikilvægi þess að gefa blóð og geta fengið að skreppa frá vinnu til þess. Auglýsingar átaksins ganga út á að höfða til atvinnurekenda með því að birta myndir af forstjórum að gefa blóð með textanum „Brettum upp ermar – gefum blóð". Með þessu eru þeir ekki síst að leggja okkur lið með því að höfða til atvinnurekenda í því tilliti að blóðgjafar þurfa frí til þess að geta gefið blóð. Blóðgjafar nýta oft hádegishlé sitt til að koma að gefa blóð og draga þannig úr fjarveru frá vinnu. Þess vegna er oft mikið álag í hádeginu og biðtími blóðgjafa verður óviðunandi langur. Það er hins vegar ekki viðunandi fyrir blóðgjafa að þurfa að bíða lengi eftir því að komast að og í raun tapa allir á því. Einstaklingurinn er mun lengur frá vinnu en hann annars þyrfti að vera og blóðgjöfin verður stress en ekki afslöppun eins og hún á að vera.Bókaðir tímar í blóðgjöf Til þess að reyna að mæta þessu og ná betra jafnvægi í biðtíma, innkomu blóðgjafa, lagerhaldi og mönnun höfum við hjá Blóðbankanum ákveðið að taka upp bókanir blóðgjafa í miklu meira mæli. Til að byrja með mun blóðgjafinn geta valið um hvort hann bókar sig í blóðgjöf, en blóðgjafar sem eiga bókaðan tíma munu ganga fyrir öðrum. Stefna okkar er hins vegar sú að fara að mestu leyti yfir í að bóka tíma. Í nágrannalöndum okkar hafa blóðgjafar bókað sér tíma í blóðgjöf til nokkurra ára. Með nýju tölvukerfi getum við haldið utan um bókanir og sent blóðgjöfum áminningu daginn áður en hann á að mæta. Með þessu móti mun blóðgjafi geta gert ráð fyrir því að þurfa ekki að bíða lengi eftir viðtali og blóðgjöfinni sjálfri sem tekur um 10 mínútur og svo er auðvitað nauðsynlegt að gefa sér aðeins tíma á kaffistofunni okkar eftir blóðgjöfina og fá sér eitthvað gott að borða, lesa blöðin, hlusta á útvarpið og spjalla við aðra blóðgjafa. Þannig á heimsóknin til okkar ekki að þurfa að taka meira en 30-40 mínútur og allt á að geta verið afslappað og þægilegt. Bókaðu tíma með því að senda okkur póst á www.blodbankinn.is eða hringdu í okkur í síma 543-5500.
Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun
Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun
Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar
Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar
Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar
Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar
Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar
Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun
Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun