Austfjarðaþokan seld ferðamönnum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 23. desember 2013 07:00 Þokusetursmennirnir Hilmar Gunnlaugsson, Hafliði Hafliðason og Ívar Ingimarsson, sem er Stöðfirðingur og fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, vilja að þokusetur dragi ferðamenn austur á firði. Mynd/Kolbeinn Hilmarsson „
Við ætlum að kynna þokuna fyrir Íslendingum og útlendingum,“ segir Ívar Ingimarsson, einn þriggja manna sem nú kynna hugmynd um þokusetur á Stöðvarfirði. „Hér á Austurlandi þurfum við að leita að sérstöðu. Við eigum Austfjarðaþokuna og hún er náttúrufyrirbrigði eins og norðurljósin. Fyrir nokkrum árum voru menn taldir galnir þegar þeir ætluðu að selja útlendingum norðurljósin. Það hefur heldur betur sýnt sig hver var galinn þar,“ segir Ívar. Áform félaganna þriggja, sem allir eru að austan og búa þar, voru kynnt fyrir yfirvöldum í Fjarðabyggð. „Þar var mjög vel tekið í erindi okkar og ég reikna með að við förum á fullt að afla okkur aðila til að vinna með okkur í þessu eftir áramótin,“ segir Ívar. Þá hafi þeir félagar fengið 600 þúsund króna styrk frá Vaxtarsamningi Austurlands. Viðbrögð fyrirtækja á svæðinu um að koma að verkefninu hafi líka verið jákvæð. „Það er klárt mál að Austurlandið er svolítið út undan þegar kemur að ferðamálum og afþreyingu og við höfum áhuga á að koma að verkefnum sem geta nýst svæðinu. Þess vegna viljum við taka þátt í að kynna hvað Austurland hefur upp á að bjóða sem valkost fyrir bæði Íslendinga og útlendinga.“ Líkt og gerist með norðurljósin er ekki hægt að ganga að þokunni vísri. „Við erum í samstarfi við Veðurstofuna. Trausti Jónsson ætlar að vera okkar sérfræðingur þar um hvenær best er að sjá og upplifa þokuna,“ segir Ívar. Bjóða á upp á margvíslegt efni til skemmtunar og fróðleiks í þokusetrinu. „Hér er fullt af stöðum sem tengjast þoku. Gömlu karlarnir á árabátum hér úti og fólk á fjöllum var að villast í þokunni og bjargast,“ bendir Ívar á. Þá segir Ívar að gera megi sérstaka „þokustíga“ upp frá vegum þar sem fólk getur stöðvað bíla sína og gengið upp úr þokunni. Á vissum stöðum verði vefmyndavélar sem hægt sé að tengjast og aðgæta hvernig útlitið er efra. „Ferðamenn segjast stundum ekki ætla niður á firði vegna þess að þar sé þoka. Eitt af því flottasta sem menn geta upplifað er að sjá þokuna koma og vefja sig um fjallatoppana eða skríða inn fjörðinn öðrum megin en vera sjálfir í heiðríkju hinum megin,“ segir Ívar sem sjálfur er frá Stöðvarfirði og rekur gistihús á Egilsstöðum.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira