Ólöglegur skattur á námsmenn Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 20. desember 2013 12:39 „Þannig að það er gengið lengra en að hækka þann raunkostnað sem nemur verðlagi á árinu 2014. Þar með tel ég að skatturinn sé orðinn ólöglegur,“ sagði Steingrímur. mynd/365
Alþingi felldi í dag tillögu um að falla frá hækkun skráningargjalda á námsmenn við opinbera háskóla úr 60 þúsund krónum í 75 þúsund krónur. Vinstri grænir lögðu tillöguna fram en hún var felld með 37 atkvæðum gegn 21. Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna, sagði á Alþingi í dag að hækkunin fæli í sér upptöku á ólöglegum skatti á námsmenn. „Hér er verið að stórhækka innritunargjöld í opinbera háskóla, en það er staðið þannig að því af hálfu stjórnarmeirihlutans að framlög til háskólanna eru skert um nokkurn vegin sömu upphæð,“ sagði Steingrímur og bætti við: „Með því er í reynd verið að breyta þessum innritunargjöldum í hreinan skatt á námsmenn í ríkissjóð því þannig kemur málið út fjárhagslega.“ Steingrímur benti á að langt væri gengið í hækkun skattsins miðað við raunkostnað háskólanna við innritun sem hann hafi verið um 66 þúsund krónur á síðasta ári samkvæmt bókhaldsgögnum Háskóla Íslands. „Þannig að það er gengið lengra en að hækka þann raunkostnað sem nemur verðlagi á árinu 2014. Þar með tel ég að skatturinn sé orðinn ólöglegur,“ sagði Steingrímur. „Og skyldi þó ekki vera að stúdentaráð ætti eftir að leggja hæstvirtan mennta- og menningarmálaráðherra aftur aftur á klofbragði,“ sagði Steingrímur og vísaði þar til þess að Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra var í haust dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að brjóta lög þegar hann ætlaði að skerða rétt til námslána.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Sjá meira