Lyfjastofnun getur ekki sinnt eftirliti með lækningatækjum Hrund Þórsdóttir skrifar 21. desember 2013 12:56 Stöðugildi sérfræðings sem sinnir málaflokknum verður lagt niður.
Lyfjastofnun getur ekki sinnt eftirliti með lækningatækjum, en það er meðal lögbundinna hlutverka hennar. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu stofnunarinnar. Stöðugildi sérfræðings sem sinnir málaflokknum verður lagt niður. Samkvæmt tilkynningu sem birt hefur verið á heimasíðu Lyfjastofnunar telur stofnunin sér skylt að koma á framfæri við almenning að henni sé ófært að sinna lögbundnu hlutverki sínu samkvæmt lögum um lækningatæki, því samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2014 verði engin fjárveiting veitt úr ríkissjóði til að standa straum af kostnaði við framkvæmd laga um lækningatæki. Málaflokkurinn var fluttur frá landlækni til lyfjastofnunar árið 2011 og fékk stofnunin þá 2,4 milljónir króna í fjárframlag til að sinna honum. Stofnað var 20% stöðugildi sérfræðings til að sinna umsýslu með lækningatækjum auk þess sem stofnunin fékk 900 þúsund króna framlag til að hefja undirbúning að gerð gagnagrunns um lækningatæki. Í tilkynningunni kemur fram að undanfarin tvö ár hafi Lyfjastofnun hins vegar ekki fengið neitt fjármagn til að sinna málaflokknum og að ekki sé gert ráð fyrir því heldur í fjárlögum komandi árs.Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að lögin um lækningatæki frá árinu 2011 hafi ekki reynst sem skyldi og meðal annars verið tilefni athugasemda frá Evrópusambandinu. Því hafi á tveimur síðastliðnum þingum verið lagt fram á Alþingi breytingafrumvarp við lög um lækningatæki, sem hafði það að markmiði að gera framleiðendum og þeim sem ábyrgð bæru á markaðssetningu lækningatækja skylt að skrá þau hjá Lyfjastofnun, svo tryggt væri að lögbært yfirvald hefði vitneskju um hvaða lækningatæki væru hér á markaði. Frumvarpið fól einnig í sér nýja nálgun á fjármögnun málaflokksins með innheimtu sérstakra gjalda af innflutningi lækningatækja í stað beins framlags úr ríkissjóði. Fram kemur að vegna deilna á Alþingi um fjármögnunarþátt málsins hafi málið dagað uppi í nefnd eftir aðra umræðu. Afleiðingin sé meðal annars að Lyfjastofnun hafi enn hvorki tök á að hafa yfirlit yfir hvaða lækningatæki séu hér á markaði né hafi stofnuninni verið tryggt fjármagn til að sinna umsýslu lækningatækja. Þrátt fyrir þær skyldur sem lagðar eru á Lyfjastofnun er henni nú ekki lengur unnt að halda úti starfi sérfræðings og verður fyrrnefnt stöðugildi lagt niður frá og með fyrsta apríl næstkomandi.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira