Lægðin virðist hafa tognað á ökkla Stefán Árni Pálsson skrifar 23. desember 2013 10:27
Vísir fjallaði í gær um eina dýpstu lægð sem sem sést hafi á Norður-Atlantshafi á 21. öldinni á aðfangadag. Samkvæmt veðurfræðingnum Trausta Jónssyni virðist lægðin hafa tognað á ökkla rétt á síðustu metrunum en það gæti farið svo að vindstrengurinn verði eins sterkur á morgun og fyrst var áætlað. Hér að neðan má sjá veðurkort frá Evrópureiknimiðstöðinni sem sýnir stöðuna klukkan 18 í dag. „Þarna er lægðin komin „of langt“ og er aðeins 944 hPa í lægðarmiðju. Hún hefur misst af stefnumóti við það sem við getum kallað veðrahvarfafleyg . Hann situr eftir sem sérstök lægðarmiðja aftan við aðallægðina. Stefnumótið átti að eiga sér stað um það bil þar sem rauða stjarnan er á myndinni. En ef marka skal líkanið á aðallægðin þó að hala hina inn og dýpka niður fyrir 930 hPa - en það er ekkert met - ekki einu sinni fyrir öldina því enn lægri tala sást í fyrra,“ segir Trausti á bloggsíðu sinni. „Hvað sem þessu líður er lægðin samt óvenjudjúp og niðurstaða dýptarkeppninnar hefur engin áhrif á veður hér á landi. Vindstrengurinn sem fylgir lægðinni að norðvestanverðu er nær sá sami og spáð var í gær. Hann er á kortinu nærri því sólarhring frá því að ná til Íslands. Vestfjarðastrengurinn er hins vegar kominn inn á Vestfirði á þessu korti og þokast til suðausturs - eins og fjallað var um í gær.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Sjá meira