Sprengdu 1.679 metra á árinu Haraldur Guðmundsson skrifar 27. desember 2013 08:35 Vaðlaheiðargöng stytta vegalengdina milli Akureyrar og Húsavíkur um sextán kílómetra. Mynd/Auðunn Níelsson.
Framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng í Eyjafirði og Norðfjarðargöng við Eskifjörð eru á áætlun og ganga vel. Um sex mánuðir eru síðan sprengingar hófust í Eyjafirði og göngin eru nú 1.371 metri að lengd. Norðfjarðargöng eru 308 metra löng en fyrsta formlega sprenging þeirra fór fram um miðjan nóvember. „Göngin hafa lengst um 55 metra á viku að meðaltali en mestu afköstin voru 83 metrar. Það hefur verið lítið af vatni og bergið er gott og verkið er nú sex vikum á undan áætlun,“ segir Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga hf. 40 manns starfa við gangagröft Eyjafjarðarmegin. Þar er unnið á vöktum allan sólarhringinn, alla daga vikunnar, en starfsmenn eru nú í tveggja vikna jólafríi. Um 15-20 manns bætast við næsta sumar þegar jarðgangagerð hefst Fnjóskadalsmegin. „Það tekur tíma að slípa mannskapinn til en samvinnan eykst með hverjum metra og því má gera ráð fyrir að metið verði slegið á næsta ári,“ segir Valgeir og heldur áfram: „Við höfum ekki lent í neinum alvarlegum töfum fyrir utan eina viku í nóvember þegar við lentum á tíu metra sprungusvæði. Það er ekkert óeðlilegt að það taki lengri tíma að fara í gegnum sprungur en í jarðfræðirannsóknum sem gerðar voru í undirbúningi ganganna er gert ráð fyrir um fjörutíu sprungum. Við höfum hins vegar einungis rekist á eina og það er mjög gott því við ættum að vera búin að fara í gegnum átta sprungur,“ segir Valgeir. Hann segist hafa andað léttar þegar vinnuvélar fóru framhjá stóru vatnsbóli sem liggur fyrir ofan fyrstu þúsund metra ganganna. „Menn voru hræddir um vatn fyrsta kílómetrann því við erum fyrir neðan vatnslind Halllands og menn óttuðust að við gætum lent í því að þurrka upp vatnsbólin. En það slapp og við erum komnir framhjá því svæði og dýpra inn í fjallið,“ segir Valgeir. Guðmundur Þór Björnsson, hjá verkfræðistofunni Hnit, sem fer með umsjón og eftirlit með framkvæmdum vegna Norðfjarðarganga, segir gröftinn hafa farið rólega af stað. „Við lentum strax á veikburða rauðu millilagi sem varð þess valdandi að við fórum hægt af stað. En undanfarið hefur verið rífandi gangur og í síðustu viku lengdust göngin um 66 metra. Eftir jólafrí verður bara borað og sprengt og vonandi verðum við ekkert í of flóknu fjalli,“ segir Guðmundur og hlær.Fundu bergkristalla í göngunum Verktakar fundu nýverið hringlaga holu þakta bergkristöllum í Vaðlaheiðargöngum. Þar var um að ræða svokallað trjábolafar. „Trjábolaför myndast þegar hraun rennur yfir skóg og fellir tré sem þá kolast og þá verður eftir hola. Það sem er merkilegt við þetta far er að það stendur upp í loft en vanalega liggja þau flöt,“ segir Halldór G. Pétursson, jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun. „Svona holur fundust einnig í Héðinsfjarðargöngum og Ólafsfjarðargöngum. Þetta er víða í þessum basalthraunlögum frá þeim tíma þegar barrskógar þöktu landið,“ segir Halldór.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira