Óþefur af Vísindabók Villa Jakob Bjarnar skrifar 27. desember 2013 09:23 Dæmi er um að fólki súrni í augum við lesturinn en pappírinn í bók sína valdi Villi sjálfur: "Munchen og er hnausþykkur og vandaður."
Sögum fer af því að fólk hafi þurft að leggja frá sér metsölubók Vilhelms Antons Jónssonar því svo mikill óþefur gýs upp þegar hún er lesin. Fólk á vefsvæðinu Bland veltir þessu fyrir sér og þar segir meðal annars: „Gaf syninum Vísindabók Villa í jólagjöf, frábær bók og fullt af skemmtilegu .... en lyktin af / úr bókinni er svo hræðileg að við urðum að hætta að skoða hana saman fyrir svefninn. Hehehe hvað er málið með það... einhver annar með þessa bók sem finnur svona skrýtna lykt af henni?“ Og, jú... fjölmargir kannast við þessa reynslu. Vísir hefur heimildir fyrir því að í einu tilfelli hafi fólk hreinlega þurft að leggja bókina frá sér; því súrnaði í augum. Og svo enn sé vitnað í bland.is: „Jebb, strákurinn segir að þetta sé „extreme new book smell“ og kötturinn hljóp í burtu í ofboði.“ Líkast til hæfir það efninu að lykt skuli leggja af bókinni. Vísindabók Villa gekk vonum framar í jólabókaflóðinu og var 3. hæst á sölulistum síðustu vikuna fyrir jól, kom á hæla bók Arnaldar Indriðasonar og Yrsu Sigurðardóttur. Bókin er uppseld hjá útgefanda, Forlaginu, sem lét prenta bókina í 15 þúsund eintaka. Má Villi vel við una og hinn ungi höfundur hefur brugðist við fregnum af óþef þeim sem leggur af bókinni og sendi frá sér, í gegnum Facebooksíðu sína, skilaboð til þeirra sem velta vöngum yfir þessu á bland.is, svohljóðandi: „Gætuð þið komið þessu til skila: pappírinn heitir Munchen og er hnausþykkur og vandaður. Enda valdi eg hann. Það er svona lykt af honum þegar hann er nyr. Mer finnst hun frabær. Enda fokdyr pappir en ja. Það er vandlifað. Bæði pappirinn og farvinn sem er settur a hann eru ætir.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira