Konur að flýja Ísland Jakob Bjarnar skrifar 13. desember 2013 13:14 Konur eru á hröðum flótta og Vilhjálmi lýst ekki á blikuna.
Samkvæmt nýju nefndaráliti utanríkisnefndar virðist ískyggileg vá steðja að Íslendingum sem og Færeyingum og Grænlendingum en fyrir liggur að fækkun kvenna á Vestur-Norðurlöndum er veruleg. Nefndin leggur til að tekið verði upp samstarf við granna okkar um að kanna hvernig þetta megi vera? „Þær eru að flýja. Farðu út á landi og þá skilurðu þetta. Atvinnutækifæri kvenna eru miklu minni úti á landi en í þéttbýli. Og sama máli gegnir þá um Ísland gagnvart þéttbýlli svæðum,“ segir Vilhjálmur Bjarnason, sem situr í utanríkisnefnd. „Með tillögunni er lagt til að Alþingi skori á ríkisstjórnina að efna til samstarfs við stjórnvöld Færeyja og Grænlands um gerð samantektar yfir kannanir og rannsóknir sem lúta að orsökum þess að konum fækkar hlutfallslega meira en körlum meðal íbúa Vestur-Norðurlanda. Teknar verði saman niðurstöður slíkra rannsókna og kannana en einnig lagðar fram tillögur og stefnumörkun sem miðar að því að snúa þessari þróun við,“ segir í nefndaráliti. Ef farið er inn á vef Hagstofunnar má sjá að konur eru fleiri en karlar í Reykjavík, Kópavogi og Garðabæ ... þéttbýlli svæðum en þær eru umtalsvert færri úti á landi. Og á Íslandi öllu eru nú færri konur en karlar. Fæðingartíðni er svipuð, ívið færri stúlkubörn fæðast en dánartíðni er meiri meðal sveinbarna og það jafnar sig út. Þá lifa konur lengur þannig að ef allt væri eðlilegt ættu þær að vera ívið fleiri, ef eitthvað er. Svo er þó ekki; konur eru færri en karlar. Munar þar þúsund. Vilhjálmur rekur þetta til þess að atvinnutækifæri eru minni fyrir konur þar sem dreifðari byggðir eru. Og líkt og það á við um dreifbýli á Íslandi gagnvart þéttbýli, á það við um Ísland gagnvart umheiminum. „Þetta sló mig, þegar ég fékk þetta í hendur og fór þá að skoða þetta nánar. Þetta undirliggjandi ójafnvægi. Það er búið að rannsaka þetta og í Færeyjum hafa konur flutt burt, á Grænlandi líka og hér einnig. Konur koma síður heim frá námi. Og það hallar á ógæfuhliðina með þetta,“ segir Vilhjálmur. En, allt þetta vill utanríkisnefnd rannsaka betur og athuga hvort ekki finnist leiðir til að snúa þessari óheillaþróun við.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Sjá meira